Leikir
Skrá inn





Til þess að skrá nýja auglýsingu/umræðu, svara auglýsingu/umræðu, taka þátt í könnun eða að fá prentvæna útgáfu af auglýsingu/umræðu, þá þarftu að vera skráð(ur).

Smelltu hérna til þess að skrá þig

mus53 | 14. maí '08, kl: 09:03:02 | Alls sótt: 3204
0

Deila

Akranes

hvernin líst ykkur á þennan innflutnins,fylla bæinn af einstæðum mæðrum,

Pandóra | 14. maí '08, kl: 09:04:30
0

SV: Akranes

Ertu að tala um móttöku palestínskra flóttamanna?

Dandí | 14. maí '08, kl: 09:05:05
0

SV: Akranes

Hmm No comment.

  • Svara
  • Snarsvar
  • www.ER.is
Góa Linda | 14. maí '08, kl: 09:06:43
0

SV: Akranes

Hvað er að því að konurnar séu einstæðar? við erum ekki að tala um smitandi plágu.

mus53 | 14. maí '08, kl: 09:07:11
0

SV: Akranes

ég er að tala um það já, hvernin svona fólk almennt líst á þetta.

Gúrún* | 14. maí '08, kl: 09:24:04
0

SV: Akranes

Ég er bara algjörlega sammála Magnúsi Þór með að Akranesbær er bara ekki í stakk búinn að taka á móti þeim að svo stöddu..

http://www.akranes.is/um-akranes/umraeda/umr_id/19395/thradur/19395/leitarstrengur/~/fl/46/

  • Svara
  • Snarsvar
  • www.ER.is
Pandóra | 14. maí '08, kl: 09:09:17
0

SV: Akranes

Hér er þér til fróðleiks lýsing á fjölda, samsetningu hópsins og þeim aðstæðum sem fólkið býr við.

http://www.felagsmalaraduneyti.is/frettir/frettatilkynningar/nr/3788

Pandóra | 14. maí '08, kl: 09:15:05
0

SV: Akranes

Og Akranesbær hefur lýst því yfir að þeir vilji ekki taka á móti flóttamönnum, þannig að það er spurning hvort Reykjavík taki við þeim.

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/05/13/flottafolk_verdi_bodid_velkomid_til_reykjavikur/

Amethyst | 14. maí '08, kl: 09:19:44
0

SV: Akranes

jahérnahér!

~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
Ƹ̵̡Ӝ̵̨̄Ʒ 女王 Ƹ̵̡Ӝ̵̨̄Ʒ

  • Svara
  • Snarsvar
  • www.ER.is
veg | 14. maí '08, kl: 09:18:17
0

SV: Akranes

Mér finnst þetta furðulegt mál.
Önnur fátækari sveitarfélög en Akranes hafa tekið hlutfallslega við fleiri flóttamönnum án þess að hafa farið á hliðina.

Pandóra | 14. maí '08, kl: 09:24:46
0

SV: Akranes

Nákvæmlega.

Og flóttamenn á íslandi hafa skilað sér vel á vinnumarkað og lagt sitt af mörkum í samfélaginu. Þannig að það er ekki eins og fólkið sé komið til að vera á féló það sem eftir er.

Og það er verið að tala um 30 manns, sem þýðir að líklega eru þetta 4-6 fjölskyldur.

Pandóra | 14. maí '08, kl: 09:27:09
0

SV: Akranes

afsakið - gætu jafnvel orðið 8 fjölskyldur, max.

  • Svara
  • Snarsvar
  • www.ER.is
Moli litli flugustrákur | 14. maí '08, kl: 09:20:45
0

SV: Akranes

Þetta verður hitamál, það er klárt.
Miðað við hvernig allt er að fara niður á við núna í þjóðfélaginu þá finnst mér þetta ekki tímabært.

Pandóra | 14. maí '08, kl: 09:26:04
0

SV: Akranes

4-6 einstæðar mæður með börn sín munu setja samfélagið á hvolf, er það?

Og við erum aðilar að alþjóðasamningum, og hluti af því er að leggja okkar af mörkum og taka við flóttamönnum (sem við höfum gert eins lítið af og mögulegt er).

jómfrúin | 14. maí '08, kl: 09:31:15
0

SV: Akranes

Mér persónlega finnst flott ef þetta fólk kemst ekki hingað á skagan. Hef ekki fordóma fyrir því eða neit en það er margt sem þarf að bæta hér í bænum áður en farið er að eyða peningum í flóttamenn. já ég er köld og þið megið alveg bauna á mig.

Hvar á þetta fólk svo að vinna hérna? það er ekki vinna fyrir þau í þessum bæ ekki í borganesi og efast um að þau eigi peninga til að keyra til rvk.

HB er hætt eða bara 15-20 starfsmenn þar. Bærin þarf að sinna svo morgu öðru aður en hann getur tekið við flóttarmönnum.

Moli litli flugustrákur | 14. maí '08, kl: 09:34:55
0

SV: Akranes

Þetta er einmitt það sem ég er að meina.

veg | 14. maí '08, kl: 09:35:20
0

SV: Akranes

Við getum endalaust týnt til eitthvað sem betur má fara hjá okkur sjálfum áður en við hjálpum náunganum.

Hinsvegar berum við svolitla ábyrgð gagnvart þessum einstæðu mæðrum sem búa í flóttamannabúðum með börnum sínum.
Við nefnilega studdum stríðið gegn þeim á sínum tíma.

Þar að auki gæti koma þessara kvenna aukið við lífsgæði í bænum þínum. Hugsanlega kunna þær eitthvað sem engum á Akranesi hefði nokkurtíman dottið í hug, eitthvað sem eykur hag Akranesar til lengri tíma litið.

Þar að auki þá gengur strætó til Reykjavíkur og ekki dýrt að sækja vinnu þangað.

jómfrúin | 14. maí '08, kl: 09:46:58
0

SV: Akranes

Ég veit vel að það gegnur strædó á milli. En hann gegnur ekki alla tíma dagsins.
Hver á að bora galdið fyrir þau? alla vega ætla ég ekki að gera það.
Ef þau myndu reyna opna e-h hérna færi það líklegast fljót á hausinn. ( ef það yrði verslun guð hjálpi þeim þá) þoli ekki þegar afgreiðslufólk talar bara ensku.

Ég ætla svo ekki að fara bera ábyrgð á e-h fólki sem ég þekki ekki neit þótt svo að höfum stutt e-h stríð. En að stiðja stríðið var ekki mín áhvorðun.
Ef bærin á ekki efn á því að skella upp 1 -2 hraðahindrunum hérna þá hefur bærin ekkert við flóttarmenn að gera.
Ég vill meina að bærin á að klára laga til hérna áður en það fer að draga fólk hingað.

veg | 14. maí '08, kl: 09:49:25
0

SV: Akranes

Neitarðu þá líka að borga skatta svo þú sért örugglega ekki að borga neitt fyrir neinn?

Eru þið komin með verði við bæjarmörkin svo engin óæskilegur flytji inn?

Amethyst | 14. maí '08, kl: 09:53:58
0

SV: Akranes

LOL! Það vantaði bara, hehe

~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
Ƹ̵̡Ӝ̵̨̄Ʒ 女王 Ƹ̵̡Ӝ̵̨̄Ʒ

Pandóra | 14. maí '08, kl: 09:53:49
0

SV: Akranes

Þetta fólk kemur frá Palestínu. Hefur ekkert með íraksstríðið að gera.

Og mæli svo með að þú lesir þér til um móttöku flóttamanna á vef félagsmálaráðuneytissins.

Kammo | 14. maí '08, kl: 11:44:05
0

SV: Akranes

-ll-

Kv.Kammó

- - - - - - - - - - - - - - - - - - -
http://quiktop.com/home.php
Frábær tappi fyrir bjórinn í útileguna!

Queen of England | 14. maí '08, kl: 11:56:43
0

SV: Akranes

Þú ættir virkilega að vinna í því að auka þekkingu þína og víðsýni. Það er örugglega erfitt að vera svona illa upplýstur.

__________________________________________
Ein af snyrtiskyttunum þremur..

Mae West | 15. maí '08, kl: 08:45:35
0

SV: Akranes

Þetta innlegg þitt, ættir þú að ramma inn og senda á moggann, það er fólk eins og þú sem gera fréttamiðla nytsamlega, verst að fólk eins og þú lest þá greinilega ekki.

Heimskt er heimaalið barn á svo sannarlega vel við þig.

________________________________________
http://www.answerbag.com/
http://www.girlsaskguys.com/
http://minekey.com/opinion
"I think you’ll find, everybody loves a loser
So you’ll be fine, you won’t be lonely long."

huggy | 15. maí '08, kl: 08:48:37
0

SV: Akranes

Almáttugur.Guði-sé-lof-að-það-eru-ekki-til-margir-eins-og-þú.

هريفنا

Nezza | 15. maí '08, kl: 08:59:07
0

SV: Akranes

Vó þú ert að mínu mati ansi hörð.

olir ekki fólk sem talar bara ensku. Þau tala nú varla ensku, svo það yrði ekki vandamál! Þau læra íslensku og það er það fyrsta sem er gert þegar flóttafólk kemur til landsins, það er að útvega þeim íslenskukennslu.

Og þú ætlar sko ekki að fara ða bera ábyrgð á e-h fólki sem þú þekkir ekki neitt! Mikið vona ég að þú og þínir lendi aldrei í neinu og þurfið aldrei á neinu að halda frá samfélaginu. Því varla gætir þú tekið við hjálp frá fólki sem þúr þekkir ekki.

Skil ekki svona þröngsýni- en það er bara kannski ég

Kv. Nezza ღ

Walter | 17. maí '08, kl: 21:05:18
0

SV: Akranes

Þú ert að grínast er það ekki?

________________________________________________________________


*Kolkumagzhuggywaltgolsskottforlifegrjonjúbbspainthyst*



*Walter Erlingsdóttir móðursystir*

snsl | 17. maí '08, kl: 23:51:54
0

SV: Akranes

Ég krossa mig bara. Það er kannski rétt hjá þér að bærinn ætti ekki að vera að flytja inn útlendinga þegar hann virðist ekki geta kennt innfæddum íslensku.

_______________

*...*Óska eftir skífusíma*...*

***Áttu borðuppþvottavél til að selja mér?***

:)

pælipæl | 18. maí '08, kl: 14:47:42
0

SV: Akranes

OMG! Það er rétt hjá þér. Skólamálin eru greinilega alveg í molum þarna!

mullan | 18. maí '08, kl: 01:58:09
0

SV: Akranes

Ég ætla rétt að vona að bærinn fari ekki að taka úr hraðahindranasjóðnum til þess að styðja flóttafólk. Það væri nú alveg glatað.

snsl | 18. maí '08, kl: 09:04:18
0

SV: Akranes

haha!

_______________

*...*Óska eftir skífusíma*...*

***Áttu borðuppþvottavél til að selja mér?***

:)

Pandóra | 14. maí '08, kl: 09:52:30
0

SV: Akranes

Nákvæmlega.

Það er dálítið hjákátlegt að sjá fólk mótmæla á austurvelli vegna þess að olían á lúxusjeppana þeirra hefur hækkað, og geta svo ómögulega tekið á móti litlum hóp kvenna og barna sem búa í tjöldum í flóttamannabúðum í írak, við hrikalegar aðstæður, með litla sem enga læknisaðstoð, berjast við snáka og rottur sem sækja í börnin á nóttunni, o.s.frv.

En við höfum ekki "efni" á að hjálpa.

Pandóra | 14. maí '08, kl: 09:49:26
0

SV: Akranes

Félagsmálaráðuneytið greiðir allan kostnað við komu flóttamannana, og alla fjárhagsaðstoð sem þeir þurfa á að halda fyrsta árið. Þannig að sá kostnaður kemur ekki úr vasa sveitarfélagsins.

Og ef þau þurfa svo að sækja vinnu til reykjavíkur, þá gengur strætó þangað.

Það hefur líka sýnt sig að flóttamenn sem hafa komið hingað fara þangað sem vinnu er að fá, þegar aðlögunartíma er lokið. Þau setjast ekki upp á féló.

veg | 14. maí '08, kl: 09:55:28
0

SV: Akranes

Einmitt enda oft hörkuduglegt og sveigjanlegt fólk sem leggur það á sig að flytja til lands sem það hefur í flestum tilfellum aldrei heyrt minnst á.

jómfrúin | 14. maí '08, kl: 09:57:08
0

SV: Akranes

Mér finnst bara komið meira en nóg af erlendu fólki hérna.
Fer að vera meiri hluti af erlendu fólki heldur en íslendingum. Stundum þarf bara steja smá stopp. Bíða í smá stund og byrja aftur.

Nei ég borga mína skatta.

búið þið á Akrnaesi ? nú ef ekki afhverju bjóðið þið ekki fólkinu bara búa hjá ykkur?

Ég vorkenni þeim alveg og allt það. En úff ohh finnst bara nóg af erlendufólki hérna.
það þarf að hafa auglysingar í blöðum hérna á ensku, pólsku og ég veit ekki hvað. mér finnst stundum eins og ég búi erlendis.

veg | 14. maí '08, kl: 10:01:14
0

SV: Akranes

Ég bý í Reykjavík og við höfum tekið á móti flóttafólki, og við munum sjálfsagt taka líka á móti þessu fólki ef þið aumingjarnir viljið það ekki.

Og veri það velkomið, ég væri alveg til í að gerast stuðningsfjölskylda fyrir eitthvað af þeim þess vegna.

Pandóra | 14. maí '08, kl: 10:03:26
0

SV: Akranes

Ok, veistu - ég er að verða reið.
Og þá er ekki gott að ég sé í umræðum.

En ég bý í Hafnarfirði, og hér hefur verið tekið á móti flóttamönnum.

Og í guðanna bænum vertu ekki að blanda saman tímabundnum innflutningi verkafólks, og móttöku flóttamanna.

Lesefni fyrir þig og fleiri:

Skýrsla um viðhorf og reynslu flóttamanna á íslandi:
http://www.felagsmalaraduneyti.is/media/acrobat-skjol/skyrsla_flottafolk_litur.pdf

Reglur um móttöku flóttafólks, hvernig það er valið, aðstoð sem það fær, og kostnað: http://www.felagsmalaraduneyti.is/malaflokkar/flottafolk/mottaka/nr/1344

marky | 14. maí '08, kl: 12:33:22
0

SV: Akranes

einmitt! Er nú smá munur þar á og þetta fólk er nú líklegast komið til að vera hérna, mun læra tungumálið og verða hluti af samfélaginu. Allt annað en verkafólkið sem er hér bara til að vinna.

huggy | 15. maí '08, kl: 08:53:10
0

SV: Akranes

Æðislegt-hvað-mikið-af-flóttamönnum-halda-áfram-að-búa-á-Íslandi.

هريفنا

vickypollard | 14. maí '08, kl: 11:27:48
0

SV: Akranes

Díses f***ing kræst! Það er verið að tala um allslaust fólk sem er hrakið frá heimilum sínum. Finnst þér í alvörunni í lagi að synja fóki um hæli af því að þú vilt ekki lesa auglýsingar á ensku í blöðunum hérna? Reyndu nú að sjá aðeins lengra en nefið þitt nær..

Charmed | 14. maí '08, kl: 21:12:22
0

SV: Akranes

vá akkurat það sem ég var að hugsa

"Arguing with a fool proves there are two." - Doris M. Smith


Heimasíður komnar í prófílinn ;)

Kammo | 14. maí '08, kl: 11:45:54
0

SV: Akranes

Ef það er eitthvað sem fer í taugarnar á mér þá eru það þröngsýnar manneskjur með hestagleraugu eins og þú.
Kíktu nú aðeins út fyrir boxið og sjáðu að heimurinn er ekki svartur og hvítur.

Kv.Kammó

- - - - - - - - - - - - - - - - - - -
http://quiktop.com/home.php
Frábær tappi fyrir bjórinn í útileguna!

pink martini | 14. maí '08, kl: 11:56:26
0

SV: Akranes

af hverju má fólk ekki hafa skoðanir eins og þú? finnst hallærislegt að koma með persónuárásir þegar að fólk er ekki sammála þér

Kammo | 14. maí '08, kl: 12:00:02
0

SV: Akranes

Ég ætla ekki að svara þessu. Lestu hvað manneskjan skrifar.

Kv.Kammó

- - - - - - - - - - - - - - - - - - -
http://quiktop.com/home.php
Frábær tappi fyrir bjórinn í útileguna!

pink martini | 14. maí '08, kl: 12:03:21
0

SV: Akranes

mér er alveg sama hvað manneskjan skrifar.. það réttlætir ekki persónuárásir.. það er hægt að rökræða án þeirra..

Kammo | 14. maí '08, kl: 12:05:29
0

SV: Akranes

Hvaða persónuárás var ég með? Sagði ég eitthvað persónulegt um hana?
Þú ættir að lesa þér til í orðabók hvað "persónuárás" er.

Kv.Kammó

- - - - - - - - - - - - - - - - - - -
http://quiktop.com/home.php
Frábær tappi fyrir bjórinn í útileguna!

pink martini | 14. maí '08, kl: 12:07:43
0

SV: Akranes

"þröngsýnt fólk með hestagleraugu eins og þú"

Kammo | 14. maí '08, kl: 12:10:56
0

SV: Akranes

Farðu í orðabókina, please.

Kv.Kammó

- - - - - - - - - - - - - - - - - - -
http://quiktop.com/home.php
Frábær tappi fyrir bjórinn í útileguna!

pink martini | 14. maí '08, kl: 12:14:00
0

SV: Akranes

það að setja út á persónu fólks kallast yfirleitt persónuárásir.. en jæja.. finns alveg vera hægt að sleppa þessu

Mae West | 15. maí '08, kl: 08:51:20
0

SV: Akranes

Það er oft talað um gleraugu ---- í methaphorísku samhengi.

________________________________________
http://www.answerbag.com/
http://www.girlsaskguys.com/
http://minekey.com/opinion
"I think you’ll find, everybody loves a loser
So you’ll be fine, you won’t be lonely long."

Antaros | 17. maí '08, kl: 06:37:57
0

SV: Akranes

vá hvað ég er langt frá því að skilja þetta metha dæmi þitt.

boogiemama | 14. maí '08, kl: 13:21:07
0

SV: Akranes

Þetta er ekki persónuárás heldur rétt lýsing.

-----------------------------------------------------------------------------------
Bless 2009, ég vona að við sjáum þig aldrei framar!

http://www.youtube.com/watch?v=xTpxg_XIdik

pink martini | 14. maí '08, kl: 13:50:22
0

SV: Akranes

segir hver? af því að þér finnst það? hún hefur aðra skoðun en þú/þið og hefur fullan rétt á því án þess að fólk fari að kalla hana þröngsýna og fleira! hvernig væri heimurinn ef allir væru á sömu skoðun.. allavega væri ekki til neitt sem heitir pólitík þá

boogiemama | 14. maí '08, kl: 23:26:58
0

SV: Akranes

Að kalla einhvern þröngsýnan er það sama og að segja að hann sé ekki víðsýnn. Skoðanir viðkomandi manneskju, sem við vitum engin deili á önnur en að hún Akranessvinur, bera ekki vott um víðsýni.

Heimurinn væri fullkominn ef allir væru á sömu skoðun, það væri hin fullkomna útópía og það hefur ALLT að gera með pólitík.

-----------------------------------------------------------------------------------
Bless 2009, ég vona að við sjáum þig aldrei framar!

http://www.youtube.com/watch?v=xTpxg_XIdik

Mae West | 15. maí '08, kl: 08:52:19
0

SV: Akranes

Ahh ok, hahah þú útskýrir betur, ég hélt þetta væri á gleraugun.

Þröngsýnn er auðvitað bara mjög augljóslega við þarna.

________________________________________
http://www.answerbag.com/
http://www.girlsaskguys.com/
http://minekey.com/opinion
"I think you’ll find, everybody loves a loser
So you’ll be fine, you won’t be lonely long."

huggy | 15. maí '08, kl: 08:55:37
0

SV: Akranes

Hún-ER-þröngsýn.
Einungis-verið-að-benda-á-hið-augljósa.

هريفنا

fex | 14. maí '08, kl: 12:15:00
0

SV: Akranes

Ég er alveg að skilja sjónarmið ykkar en engu að síður þá er til fólk, konur og börn sem eru allslaus á Íslandi líka og búið að hrekja þetta fólk úr húsum sínum.

Það eru 800 manns að bíða eftir félagslegu húsnæði í Reykjavík og annað eins sem býr undir fátækramörkum og það líða börn fyrir það ástand, svo ef þau sem þessu landi stjórna er svona full af réttlætiskennd í garð þeirra sem minna mega sín afhverju eiga þau svona auðvelt með að líta undan þegar kemur að því koma fólki til hjálpar hérna heima.

Mae West | 15. maí '08, kl: 08:50:32
0

SV: Akranes

Finnst manneskjan bara bjóða upp á hvað sem hún fær. Finnst Kammó ekki segja neitt, hún er að nota myndlíkingar bara, engar persónuárásir.

________________________________________
http://www.answerbag.com/
http://www.girlsaskguys.com/
http://minekey.com/opinion
"I think you’ll find, everybody loves a loser
So you’ll be fine, you won’t be lonely long."

jellómelló | 18. maí '08, kl: 02:57:38
0

SV: Akranes

ooo er orðin svo leið á þessu rugli með að fólk sé heimilislaust á íslandi og hvernig við eigum að hjálpa því fyrst, við erum að tala um ALSLAUSAR mæður með börn sem hafa í engin hús að vernda, á Íslandi geta allir farið í skóla eða fundið sér vinnu, við búum í frjálsu landi, ef þú átt ekki eitthvað geturu staðið upp af rassgatinu og unnið þangað til þú færð þetta eitthvað, ef börn eru að svelta á Íslandi ættu foreldrarnir að forgangsraða aðeins betur eða vinna aðeins harðar!! Ég er ekki að tala um alla því ég veit að stundum kemur eitthvað upp á sem við getum engann veginn ráðið við en svo lengi sem fólk hefur heilsu til að vinna ættu börnin ekki að vera svöng eða heimilislaus!!

snsl | 18. maí '08, kl: 09:13:39
0

SV: Akranes

Skulum ekki alhæfa. Lán geta fallið á mann og annað slíkt, jújú -það á ekki að skrifa uppá fyrir aðra en alltaf gott að vera vitur eftir á.

En ég er rosalega stolt af einni sem ég þekki. Hún er 75% öryrki með 2 unglinga á framfæri, einstæð og fær enga hjálp frá barnsföður sínum. Endalaust þarf hún að bíða eftir félagslegri íbúð (erum að tala um 5 ár eða eitthvað). Sjálf kýs hún að vinna létta vinnu sem borgar ekki nema 10-15þús krónum betur en örorkubæturnar því hún vill vera góð fyrirmynd fyrir börnin sín.
Auðvitað geta ekki allir öryrkjar unnið en mér finnst þetta bara svo frábært :)

_______________

*...*Óska eftir skífusíma*...*

***Áttu borðuppþvottavél til að selja mér?***

:)

pælipæl | 18. maí '08, kl: 14:51:55
0

SV: Akranes

Vá sammála þér! Þetta er alvöru fyrirmynd! Það er því miður staðreynd að bæði örorka og félagsleg vandamál ganga í erfðir.
Yndisleg kona sem þú þekkir!

Mae West | 15. maí '08, kl: 08:49:05
0

SV: Akranes

Þú bara hlýtur að vera togara nikk.
Það er ekki til svona heimskt fólk.
Ég bara trúi því ekki.

________________________________________
http://www.answerbag.com/
http://www.girlsaskguys.com/
http://minekey.com/opinion
"I think you’ll find, everybody loves a loser
So you’ll be fine, you won’t be lonely long."

Nezza | 15. maí '08, kl: 09:22:31
0

SV: Akranes

en hægan hægan, það er himinn og haf á milli flóttamanna sem hingað leita og svo þeirra sem koma af fúsum og frjálsum vilja til þess eins að vinna og fara svo aftur heim. Flóttamenn setjast yfirleitt að hér til "eilífðar"

Kv. Nezza ღ

garpur76 | 18. maí '08, kl: 00:41:58
0

SV: Akranes

vá!! afhverju flyturu ekki fyrst það er svo slæmt að búa þarna?

Ég hefði ekkert á móti því að fá þessa flóttamenn hingað vestur, það er góð reynsla af því í Ísafjarðabæ... væri svo sátt að vita að skattpeningarnir mínr gætu hjálpað einhverjum :c)

Kveðja Garpurinn

Gúrún* | 14. maí '08, kl: 10:03:36
0

SV: Akranes

Félagsmálaráðuneytið borgar já allan kostnað með flóttafólkinu fyrsta árið, það er alveg rétt.
En mín skoðun um að vera mótfallin því að fá flóttamennina til bæjarins er kannski ekki byggð á fjárhagsáhyggjum einum saman.

Það er bara staðreynd að það er ekkert leiguhúsnæði að fá hér eins og er!
Leikskólamál eru ekkert á toppnum hér, en þeir gera sitt besta í drullureddingu þangað til ja..Þetta lagast ?

Mér finnst bara margt í þessum bæ sem betur má fara áður en við förum að taka við fólki og bjóða þeim framtíð í þessum bæ!

Pandóra | 14. maí '08, kl: 10:06:20
0

SV: Akranes

Þetta eru í mesta lagi 8 fjölskyldur. Líkast til færri.

Setur það bæinn úr skorðum ef 8 íslenskar fjölskyldur flytja til bæjarins?

Gúrún* | 14. maí '08, kl: 10:18:15
0

SV: Akranes

Það er enginn að tala um að þessar einstæðu mæður með börnin sín séu að fara að setja bæinn gjörsamlega úr skorðum!

Þú hlýtur nú að skilja að staða bæjarins er bara alls ekki góð, og hver veit hvort að þessi fámenni hópur setji allt úr skorðum ?!

Félagskerfið hér er sprungið, það er ekki hægt að hjálpa þeim fjölskyldum sem búa hér núna því ekkert framboð er af húsnæði, leikskólarnir eru yfirfullir og einn í byggingu og biðlistarnir eftir því !

Grunnskólarnir tveir taka ekki endalaust við og er held ég farið að kenna í útiskúrum við skólana að einhverju leiti, sem bráðabirgðalausn!

Mér finnst við bara verða að hugsa rökrétt einu sinni, hvernig á að vera hægt að hjálpa þessu fólki ef ekki er hægt að hjálpa þeim sem búa hér nú þegar ?

og já ég man ennþá að félagsmálaráðuneytið ætlar að borga með þessu fólki sem ég hef ekkert á móti að fá til landsins, en við erum ekki á nokkurn hátt í aðstöðu að svo stöddu til að taka á móti þessu fólki!

hangikjöt | 14. maí '08, kl: 10:26:14
0

SV: Akranes

Reyndar er ekki farið að kenna í útiskúrum ennþá en ef þetta fólk kemur hingað til lands þá verður pottþétt kennt í útihúsum þar sem sá skóli tekur á móti nýbúum.

flögri | 14. maí '08, kl: 12:11:04
0

SV: Akranes

það á að byrja að kenna í skúrunum í haust.

vatnadis | 18. maí '08, kl: 14:45:01
0

SV: Akranes

Það er líka kennt í útiskúrum hér í Hafnarfirði, ég var í Fossvogsskóla og þar var líka kennt í útiskúrum..það voru bara ósköp notalegar litlar samtengdar skólastofur..

pælipæl | 18. maí '08, kl: 14:53:33
0

SV: Akranes

LOL það var líka gert í mínum grunnskóla öll mín 10 grunnskólaár.
Ég held það hafi enginn borið skaða af.

Nefertiti | 14. maí '08, kl: 13:42:35
0

SV: Akranes

Það er alltaf verið að hamra á því að Ísland er eitt af ríkustu löndum HEIMS! Við skilum ríkissjóði í hagnaði þannig að JÚ við erum akkúrat í aðstöðu til að taka á móti flóttamönnum, mættum bara vera duglegri við það.

Gúrún* | 17. maí '08, kl: 23:48:33
0

SV: Akranes

Já ég held að við verðum bara að vera sammála um að vera ósammála.
Mér finnst Akranesbær amk ekki tilbúin til að fara að sinna svona stóru verkefni þegar þeir geta ekki einu sinni rekið bæinn almennilega.

Wasser | 18. maí '08, kl: 13:19:47
0

SV: Akranes

Akranesbær þarf ekki að leggja út eða reka þessa aðstoð heldur munu ríkið og Rauði krossinn gera það.
Ekki verður klipið af þeim félagslegu bótum sem til staðar eru.
Eftir 1-2 ár hættir aðstoðin því þá ætti aðlögun að vera komin en ef eitthvað verður að hjá þessu fólki eftir þann tíma gæti verið að þau myndu sækja um aðstoð.
Gæti verið.

Einnig gæti verið að atvinnulausar einstæðar mæður frá Ísafirði, Egilsstöðum og Reykjavík flyttust til Akraness á þessum tíma.
Það er erfitt að spá um það.

~~~~

SBjörk | 18. maí '08, kl: 13:30:41
0

SV: Akranes

Guð hjálpi okkur Skagamönnum frá þeirri ógn - segjum STOPP við aðflutningi útlendinga og einstæðra mæðra !!! Og ef út í það er farið - við viljum heldur ekki fyllibyttur og öryrkja.
Upp fyrir hreinu Akranesi ;P

zbibme5b | 21. maí '08, kl: 23:27:35
0

SV: Akranes

Akranesbær hefur gert lítið annað við peningana sína amk síðustu 30 ár en að henda þeim í fótbolta. Fótbolta þetta og hitt. Innan fótboltans er síðan erfðakerfi svo að það sé örugglega hentugir niðjar sem börnin eru komin af. Bærinn hlýtur að sjá möguleika með hagræðingu innan þess geira. Sleppa kannski fyrsta flokk í nokkur ár. Það er örugglega mikill sparnaður í því. Að ég nefni ekki ferlíkið hið hrikalega ljóta fótboltahús sem stútaði algerlega dásamlegu útsýni. Smekkleysan er með eindæmum.
Ísafjörður hefur tekið á móti flóttafólki og svo og Blönduós. Ekki grétu þau sveitafélög og vældu þrátt fyrir smæð sína. Akranesbær er búinn að hafa mjög langan tíma til að gera eitthvað skynsamlegt og það er löngu tímabært að hann aðstoði fólk úr öðrum heimshlutum. Þó svo að það séu biðlistar í félagslega kerfið. Hversu margir af þeim ætla sér að svindla og pretta á félagslegakerfinu eins og mörg dæmi eru um? Hversu margir eru að því nú þegar? Hvað finnst skattgreiðendum um það fólk? Bara allt í gúddí? Ég vorkenni þessu flóttafólki yfir því að þurfa að búa þarna sérstaklega vegna þessarar umræðu sem ratar alltaf í börnin og kennir þeim ósiði gagnvart fólki frá öðrum löndum. Blaðrið í þessum bæ er með eindæmum og ég held að fólk sé að henda sér í fáránlega umræðu. Það er skilyrðislaus skylda að hjálpa náunganum. Og mér finnst að Skagamenn eigi að vera stoltir af því að bjóða Ísraelsmönnum byrginn.

cantremember | 14. maí '08, kl: 10:11:50
0

SV: Akranes

svo er ekkert sem segir að þau tali allavega ensku er það, þar sem þau koma frá er ekki töluð enska að öllu venjulega (correct me if im wrong) og svo má kannski líka nefna að þau eru mjög líklega muslimar og það myndi taka þau langaaaaan tíma að aðlagast að okkur hérna þar sem flestir eru ekki einu sinni trúaðir.... æi ég veit ekki, mér langar ekki að vera á móti þessu en mér finst bara vera svo obboslega margir í heiminum sem þurfa á hjálp að halda og við gætum ekki einu sinni byrjað að hjálpa litlu broti úr þessum heimi áður en milljón manns deyja.

yeah yeah yeah shut up with the broccoli.

Abbagirl | 14. maí '08, kl: 10:37:46
0

SV: Akranes

Ég myndi einmitt halda að það væri kostur að þau töluðu ekki ensku, þeir útlendingar sem að ég veit um sem hafa flutt til landsins og kunna ensku eru svo "heppnir" að hér tala allir ensku þannig að mér finnst þeir bara vera lengur að læra íslensku en þeir sem tal egna/litla ensku. Flóttafólk fer á násmkeið til að læra íslensku.

Abbagirl

ebe | 15. maí '08, kl: 08:35:24
0

SV: Akranes

Það að flóttafólkið sé múslimar segir ekkert til um það hvort það er trúað eða ekki. Ég sé ekki alveg af hverju múslimar ættu að eiga erfiðara með að aðlagast kristnu samfélagi þar sem trúin er ekki stunduð heldur en einhverju öðru samfélagi. Það að vera múslimi þýðir ekki endilega trúrækni.

cantremember | 14. maí '08, kl: 09:57:00
0

SV: Akranes

doldið sammála þér verð ég að segja ...

yeah yeah yeah shut up with the broccoli.

Rúdolf | 14. maí '08, kl: 20:46:14
0

SV: Akranes

Selja herbalife online t.d!?

snsl | 14. maí '08, kl: 21:01:25
0

SV: Akranes

Djöfulsins tík ertu. Tussa.
Geta þau ekki líka selt herbalife?

_______________

*...*Óska eftir skífusíma*...*

***Áttu borðuppþvottavél til að selja mér?***

:)

Rúdolf | 14. maí '08, kl: 21:08:56
0

SV: Akranes

Jú einmitt það sem ég var að reyna að segja....ef þú ýtir á fyrri færsla þá er verið að tala um að það sé enga atvinnu að hafa já...og ég svaraði því að það væri næga atvinnu að hafa og atvinnan þyrfti jú ekki endilega að vera á Skaganum jú sí!!!!!!!!!!!!!!
Tík sjálf!

Medister | 14. maí '08, kl: 21:12:05
0

SV: Akranes

Og ef þú ýtir á fyrri færslu hjá henni þá sérðu að hún var alls ekkert að svara þér! Hahaha....

________________________________
Með stórmannlegar tilfinningar.

Rúdolf | 14. maí '08, kl: 21:13:26
0

SV: Akranes

LOL
Hahaha Djók...sorry...

  • Svara
  • Snarsvar
  • www.ER.is
flögri | 14. maí '08, kl: 09:58:00
0

SV: Akranes

Finnst þetta eiginlega bara vera rugl og vitleysa.
Hef ekkert á móti útlendingum sem slíkum.
Finnst bara að það ætti að reyna að aðstoða það fólk sem býr hérna áður en það er farið að koma með fleiri inní félagslega kerfið hérna.

Biðlistinn eftir félagslegri íbúð er bara svakalega langur hérna uppá Skaga. Ég var sjálf á biðlista í 7 ár. Og er ekki enn búið að bjóða mér íbúð. Sem skiptir svo sem ekki miklu máli í dag. Er í allt annarri stöðu núna en þá.
Finnst ekkert réttlæta það að fara að taka á móti hóp af einstæðum mæðrum og finna húsnæði, vinnu, leikskólapláss og annað þegar þeir geta það ekki fyrir það fólk sem er kanski búið að búa hérna alla sína ævi.
Það er bara mitt álit.

jómfrúin | 14. maí '08, kl: 10:02:10
0

SV: Akranes

Sammála þér isbirna:D

Meina eins og með leikskólamálin þá eru biðlista hérna. nóg af einstæðum mæðrum og allt í þessu.

Fyrst að minnka biðlistana hérna svo skulum við hjálpa til

hangikjöt | 14. maí '08, kl: 10:10:48
0

SV: Akranes

ég hef nú minni áhyggjur af leikskólamálunum, en grunnskólanum.
Mestar áhyggjur hef ég þá af læknamálunum þar sem það tekur 3-7 daga að fá tíma hjá heimilislækni.

Annars hef ég ekki kynnt mér þetta mál nógu vel til að vita hvernig þetta fer fram og veit að sum sveitarfélög sem hafa tekið á móti flóttafólki hafa ekki verið í vandræðum með það.

  • Svara
  • Snarsvar
  • www.ER.is
guragn | 14. maí '08, kl: 10:11:01
0

SV: Akranes

Afsakið en þessi umræða er full af fordómum hjá mörgum ykkar þótt þið haldið annað. Heyr heyr Pandóra ég er sammála þér :-)

jómfrúin | 14. maí '08, kl: 10:15:12
0

SV: Akranes

já læknamálin hér eru mjög slæm.
Fór til læknis um daginn og fór til konu sem var pólsk. veist ég skildi ekki allt sem hún sagði;/ talaði svo hræðilega íslensku og ég ekki góð í ensku:/

kanski er það þeim fyrir bestu ef það er e-h bæjarfélag sem getur tekið á móti þeim með betri aðstæður.
kanski eru ekki neinar góða aðstæður til. En þá nátturlega koma þau hingað. þó að lítð sé um að fá húsnæði nema kaupa.

hangikjöt | 14. maí '08, kl: 10:23:14
0

SV: Akranes

Það er nú ekki allt svart á Akranesi eða ég hef ekki séð það, já í sambandi við félagslegt húsnæði þá á bærinn ekki nóg af íbúðum.
Já ég fór einmitt til læknis um daginn og hún varð að fá hjálp frá öðrum lækni til að lesa sig í gegnum skíslurnar mínar til að ég fengi viðeigandi meðferð. Þær tala hvorug 100%íslensku og mér finnst það ekki gott þar sem þetta eru læknar og ég vil helst skilja læknana sem ég fer til.

En ég held að ekkert bæjarfélag sé 100% tilbúið að taka á móti flóttamönnum stundum verður bara að gera hlutina og láta svo ráðast hvað verður. Getur líka komið sér vel því auðvitað fær bærinn eitthvað í kassann frá ríkinu.

NöttZ | 17. maí '08, kl: 08:51:57
0

SV: Akranes

Gvuð, elsku barn. Ekki nóg með að hún væri pólsk heldur var hún kona líka. Vonandi jafnarðu þig fljótt.

_____________________________
Pirrað IKEA skrifborð óskar eftir nýju heimili:
http://bit.ly/cnGwEH

Flódhesturinn | 18. maí '08, kl: 18:43:27
0

SV: Akranes

Það kemur mér þvílíkt á óvart að þú sért ekki góð í ensku!

*kaldhæðni*

  • Svara
  • Snarsvar
  • www.ER.is
lally | 14. maí '08, kl: 11:00:28
0

SV: Akranes

Vá mér finnst þessi umræða full af fordómum. Ég er allavegana búin að komast að því að ég vil ALDREI ALDREI keyra í gegnum Akranes aftur sé þetta núna fyrir mér sem draugabæ með fólk hangandi út á götu þar sem ekkert annað er að gera vegna atvinnuleysis, sem betur fer er ég gáfaðari en það að vita að svo er EKKI.
Flóttafólk er einmitt annað en tímabundið atvinnufólk, fyrir utan það að Schengen-sáttmálin gerir landið eins opið og það er fyrir öllum þessum útlendingum og jafnvel því glæpafólki sem er komið til landsins og við getum ekkert gert í því. Munurinn jú á þessu fólki er oft sá að flóttamannafólkið vill hefja betra líf, þar með leggur það sig oft fram við það að læra tungumálið í viðkomandi landi og fá vinnu til að lifa. Einnig eins og einhver benti á hérna áðan þá er fínt að þau tali ekki ensku eru miklu fljótari að ná þá íslenskunni. Með leikskólavandan einhverstaðar las ég líka að fólk vantaði á leikskólana uuuuu þarna eru komnir starfskraftar, ekki tala um íslenskukunnátuna því ég veit til þess að margir leikskólar eru ekki með 100% íslenskutalandi fólk.
Einnig langar mig smá að benta á það að þegar ég var að byrja í skóla þá 6 ára eins og flestir hér ættu að vita (er 22 ára í dag) þá var ég í svona úti skúr, þannig að það er ekkert nýtt vandamál. Rekið nú bara á eftir Akranesbæ og látið þá gera eitthvað þið getið það alveg ef þið viljið og gefist ekki upp strax. BTW ég ætla ekki að gera það þar sem ég bý ekki á Akranesi ég keyri valla þarna framhjá og hef þess vegna engra hagsmuni að gæta. Einnig að þetta flóttamannafólk er velkomið í mitt sveitarfélag.

Frábærar neglur ;) http://www.facebook.com/# !/pages/Reykjavik-Iceland/LCN-gelneglur/127770173914289?ref=ts&ajaxpipe=1&__a=7
I'm an angel, honest! The horns are just there to keep the halo straight

marky | 14. maí '08, kl: 12:48:13
0

SV: Akranes

einmitt, skaginn kemur illa út úr þessari umræðu.
Er þetta ekki bara tilvalið tækifæri til að reka á eftir því að hlutir séu lagaðir? Akranes getur alveg tekið á móti þessu fólki ef viljinn er fyrir hendi ...það virðist bara vanta hann.

lally | 14. maí '08, kl: 12:51:15
0

SV: Akranes

Nákvæmlega, tilvalið tækifæri fyrir íbúa Akranesbæjar að taka höndum saman, heimta þessar hraðahindranir sem einhver talaði um og heimta betri íbúðir. Nákvæmlega þegar þarf að gera eitthvað svona á að standa saman. Halda fund fyrir íbúana s.s. með eða án stjórnmálamanna svo íbúar geta komið með sínar hugmyndir og "neyða" bæjarstjórnina og aðra ráðamenn að gera eitthvað í málinu. Ekki bara stija á rassgatinu og gera ekki neitt.

Frábærar neglur ;) http://www.facebook.com/# !/pages/Reykjavik-Iceland/LCN-gelneglur/127770173914289?ref=ts&ajaxpipe=1&__a=7
I'm an angel, honest! The horns are just there to keep the halo straight

marky | 14. maí '08, kl: 12:54:40
0

SV: Akranes

það væri óskandi að fólk myndi ákveða að taka höndum saman og láta hlutina gerast

...en að sitja á rassgatinu er ósköplega vinsæl iðja

marky | 14. maí '08, kl: 12:56:04
0

SV: Akranes

*ósköplega??! wtf?

lally | 14. maí '08, kl: 12:56:15
0

SV: Akranes

Það er jafnlíklegt held ég að sú ósk rætist eins og að biðja um heimsfrið :þ og yeah right að það rætist einhverntíman :S

Frábærar neglur ;) http://www.facebook.com/# !/pages/Reykjavik-Iceland/LCN-gelneglur/127770173914289?ref=ts&ajaxpipe=1&__a=7
I'm an angel, honest! The horns are just there to keep the halo straight

marky | 14. maí '08, kl: 13:04:10
0

SV: Akranes

já því miður :(
venjan er að kvarta og kveina yfir hlutunum en að gera eitthvað til að breyta þeim gerist sárasjaldan :(

ÁFRAM SKAGAMENN!!! ÞIÐ GETIÐ ÞAÐ! BERJIST FYRIR ÞVÍ SEM VANTAR!

...núna er ég búin að gera mitt besta í baráttunni :P

lally | 14. maí '08, kl: 13:05:33
0

SV: Akranes

Segi það sama ÁFRAM SKAGAMENN ;)

Frábærar neglur ;) http://www.facebook.com/# !/pages/Reykjavik-Iceland/LCN-gelneglur/127770173914289?ref=ts&ajaxpipe=1&__a=7
I'm an angel, honest! The horns are just there to keep the halo straight

marky | 14. maí '08, kl: 13:22:47
0

SV: Akranes

:)

Mae West | 15. maí '08, kl: 08:55:19
0

SV: Akranes

-ll-

________________________________________
http://www.answerbag.com/
http://www.girlsaskguys.com/
http://minekey.com/opinion
"I think you’ll find, everybody loves a loser
So you’ll be fine, you won’t be lonely long."

  • Svara
  • Snarsvar
  • www.ER.is
mus53 | 14. maí '08, kl: 11:47:03
0

SV: Akranes

með svona áframhaldi að hleypa öllum inn í landið okkar, hvernin haldiði að þetta verði eftir svona fimm eða tíu ár, útlendingar verða búnir að hertaka landið okkar, hvað gerum við þá, þó svo að þetta fólk útí heimi þurfi á hjálp að halda, þá getum við ekki bjargað öllum heiminnum, það er svo mikið að fólki herna heima sem þarf á aðstoð að halda og fær hana ekki, mer finnst það nær að hjálpa okkar fólki fyrst, svo getum við hjálpað öðrum,

Queen of England | 14. maí '08, kl: 11:58:42
0

SV: Akranes

Þú ættir líka að vinna í að auka þekkingu þína, eins og ég benti annarri á hérna ofar.

__________________________________________
Ein af snyrtiskyttunum þremur..

Kammo | 14. maí '08, kl: 14:02:55
0

SV: Akranes

-ll-

Kv.Kammó

- - - - - - - - - - - - - - - - - - -
http://quiktop.com/home.php
Frábær tappi fyrir bjórinn í útileguna!

  • Svara
  • Snarsvar
  • www.ER.is
Seretide | 14. maí '08, kl: 11:53:00
0

SV: Akranes

Það er mikil vöntun hér á félagslegu húsnæði og af hverju eiga innfæddir skagamenn að þurfa að dúsa inni á ættingjum sínum eða í allt of litlu húsnæði til þess að flóttafólk fái að koma og setjast að á akranesi.

Finnst að það meigi gera betur fyrir bæði íslendingana hér og útlendingana.

Get ekki séð að Akraneskaupstaður sé einhvað betur settur með fullt af flóttamönnum þar sem að móttaka svoleiðis fólks krefst mikils undirbúnings.

Sölusíðan mín - barnavörur - www.nino.is/til_solu

-Sjálfstæður söluráðgjafi Volare-

lydia | 17. maí '08, kl: 23:24:32
0

SV: Akranes

Þetta flóttafólk á ekki einu sinni ættingja til þess að búa hjá!

Kveðja Lýdía

--------------------------------------------------------------------------------

  • Svara
  • Snarsvar
  • www.ER.is
Snobbhænan | 14. maí '08, kl: 12:01:36
0

SV: Akranes

Andskotinn! Ég var í þessu fína skapi, en eftir að hafa lesið þessa umræðu er ég bara pirruð!

Esme | 17. maí '08, kl: 02:40:09
0

SV: Akranes

ég er brjáluð.

_____________________________
gömul gæra í götóttum sokkum.
_____________________________
0 vikur

  • Svara
  • Snarsvar
  • www.ER.is
flögri | 14. maí '08, kl: 12:21:47
0

SV: Akranes

Ég er ekki með neina fordóma gagnvart útlendingum, mér finnst frábært að Ísland skuli vera að reyna að hjálpa þessum einstæðu mæðrum.

En........
Akraneskaupstaður þarf bara að koma sínu félagslega kerfi í betra horf áður en það er hægt að taka á móti flóttafólki.

Ég persónulega veit um fólk sem hefur flutt milli landshluta þegar féló í hennar bæjarfélagi fór að gera einhverjar athugasemdir í sambandi við raunverulega stöðu fólksins. Þeim var troðið frammfyrir fólk sem var búið að vera á biðlista í nokkur ár hjá féló hérna. Veit bara um nokkur dæmi þess.

Fólk var farið að halda að það væri skilti hérna fyrir utan bæinn sem segði öllum ræflum að flytja hingað því féló myndi hjálpa þeim.

Það urðu margir reiðir útaf þessu. Og veit að það myndu margir verða reiðir núna ef af þessu yrði.
Ég yrði líka svona pirruð ef þetta væru bara íslendingar sem væri verið að flytja búferlafluttningum og fengu beint inni hjá féló.

fex | 14. maí '08, kl: 12:31:47
0

SV: Akranes

Veit ekki með ykkur en ef ég væri búin að vera með börnin mín í fátækt og á vergangi í mörg ár eins og margar íslenskar mæður eru, þá finndist mér heldur sárt ef stjórnvöld sem hafa horft framhjá mínum vanda í öll þessi ár færu að taka einstæðar mæður úr öðrum löndum fram fyrir mig og veita þeim húsaskjól og fjárhagsaðstoð af því að þær væru í vanda staddar.

Þá er ég ekkert að gera lítið úr þeirri eymd sem þessar erlendu konur búa við, ég held að við eigum bara svo erfitt að viðurkenna þann vanda sem margar fjölskyldur eru í á þessu landi og á meðan vandinn er ekki viðurkenndur er heldur ekki verið að takast á við hann.

NöttZ | 17. maí '08, kl: 08:54:41
0

SV: Akranes

Liggur það fyrir að flóttafólk leggist óhjákvæmilega á spenann hjá Féló?

_____________________________
Pirrað IKEA skrifborð óskar eftir nýju heimili:
http://bit.ly/cnGwEH

  • Svara
  • Snarsvar
  • www.ER.is
Seretide | 14. maí '08, kl: 12:41:29
0

SV: Akranes

Ég á vinkonu sem býr í húsnæði sem féló hér er með á leigu og það húsnæði er ekki upp á sitt besta.

Framboð á húsnæði til leigu hér er mjög takmarkað og féló er ekki að slást við þá sem eru á leigumarkaðinum.

Það væri jú líka asnalegt ef féló myndi bjóða hærri leigu en leigjandi húsnæðis bara til þess að fá húsnæðið. Þá væri féló ekki að gera vel við íbúana hér.

Sölusíðan mín - barnavörur - www.nino.is/til_solu

-Sjálfstæður söluráðgjafi Volare-

flögri | 14. maí '08, kl: 12:43:48
0

SV: Akranes

veit samt um eitt dæmi þar sem féló bauð íbúðareiganda hærri leigu en núverandi leigjendur hans borguðu.
Eins ömurlegt og mér finnst það nú.

Seretide | 14. maí '08, kl: 12:44:41
0

SV: Akranes

einmitt... ég veit um að þetta var reynt en það var rekið ofan í þau og þá hættu þau við.

Sölusíðan mín - barnavörur - www.nino.is/til_solu

-Sjálfstæður söluráðgjafi Volare-

flögri | 14. maí '08, kl: 12:46:46
0

SV: Akranes

já reyndar

Seretide | 14. maí '08, kl: 12:47:36
0

SV: Akranes

erum við að tala um sama dæmið kannski :)

Sölusíðan mín - barnavörur - www.nino.is/til_solu

-Sjálfstæður söluráðgjafi Volare-

flögri | 14. maí '08, kl: 12:49:25
0

SV: Akranes

það gæti kanski bara verið:)

Friddsi | 14. maí '08, kl: 13:24:15
0

SV: Akranes

:)

fex | 14. maí '08, kl: 13:57:47
0

SV: Akranes

Við skulum átta okkar á að eymdin er víða og meira að segja á Íslandi og ótrúlegt að horfa upp á Ingibjörgu og co að reyta arfann allstaðar þar sem þau stinga niður fæti nema í sínum landi.

Því miður þið verðið að fyrirgefa, en á meðan börn svelta á Íslandi og mæður með þau á vergangi þá get ég ekki kvittað fyrir komu þessara kvenna hingað, með fullri virðingu fyrir þeim og þeirra aðstæðum.

veg | 14. maí '08, kl: 14:00:28
0

SV: Akranes

Ég kaupi það ekki að börn svelti á íslandi!
Það er að minnsta kosti alveg öruggt að ekkert barn sveltur hér á landi.

Við erum eitt ríkasta land í heimi og mér finnst í góðu lagi að við látum það ríkidæmi leka aðeins yfir á aðra, ekki síst einstæðar mæður sem eiga oft mjög erfitt uppdráttar annarstaðar í heiminum.

fawkes | 14. maí '08, kl: 20:43:58
0

SV: Akranes

þetta er nú bara djöfulsins kjaftæði... ég skil ekki hvenig það hjálpar einstæðum mæðrum á íslandi að annað fólk sé svona ríkt og að landið heiti á pappírunum ríkasta land í heimi... þetta ríkidæmi sem þú ert að tala um er sko ekki að skila sér til einstæðra mæðra. Það eru örfáar hræður sem eiga shitload af peningum og svo slatti af fólki sem lifir góðu lífi, en það er líka mjög margt fólk sem ná ekki að láta endana ná saman og eiga ekki fyrir mat.

Medister | 14. maí '08, kl: 21:08:30
0

SV: Akranes

Það er líka fullt af fólk sem hreinlega velur eymdina. Þetta fólk hefur ekkert val.

________________________________
Með stórmannlegar tilfinningar.

fawkes | 14. maí '08, kl: 21:16:24
0

SV: Akranes

það að sumt fólk "velji eymdina" kemur því ekkert við að það ástandið á íslandi er ekki jafn gott og menn vilja vera láta..

og góðæri?? bara því fólk er búið að leyfa sér meira og kaupir meira af óþarf drasli þá á að vera góðæri á íslandi... en ekkert horft til þess að fólk er bara búið að skuldsetja sig í topp til að lifa þessu "góða lífi" sínu... usss...

jæja, ætla að hætta að tjá mig, orðin trekkt á taugum.

Medister | 15. maí '08, kl: 12:53:10
0

SV: Akranes

Og hverjum er það að kenna að fólk skuldsetur sig uppfyrir augnhár? Einhverjum öðrum en því sjálfu?

________________________________
Með stórmannlegar tilfinningar.

fawkes | 17. maí '08, kl: 05:58:18
0

SV: Akranes

Að sjálfsögðu er það þeim sjálfum að kenna... það er ekki það sem málið snýst um...

Heldur er það þessi blekking sem allir virðast lifa í, bara horft á hversu mikið bílainnflutningur hefur aukist og hversu margir flatskjáir og svona rugl hefur verið keypt og út frá því er sú ályktun dregin að hér sé góðæri og allir geti bara leyft sér að lifa góðu lífi, þegar það er bara blekking.

Brugsen | 18. maí '08, kl: 12:22:49
0

SV: Akranes

Flestir á Íslandi geta lifað þokkalegu lífi. Það er einfaldlega staðreynd.

Hér eru almenningssamgöngur, hér er almannatryggingakerfi og hér er ríkisrekið sjúkrakerfi og skólar reknir af hinu opinbera. Fólk með börn fær barnabætur, öryrkjar fá örorkubætur og atvinnulausir fá atvinnuleysisbætur.

Í fjölda landa, m.a.s. í Evrópu, eru þessir hlutir ekki fyrir hendi. Vissulega eru einstaklingar sem eru illa settir, en við getum ekki borið okkar lífskjör á nokkurn hátt saman við stöðu fólks í flóttamannabúðum.

  • Svara
  • Snarsvar
  • www.ER.is
hangikjöt | 15. maí '08, kl: 10:47:59
0

SV: Akranes

vonum bara að þessum flóttamönnum eigi eftir að líða vel þar sem þeir verða í framtíðinni.

veg | 15. maí '08, kl: 10:50:05
0

SV: Akranes

Já, vonum að þeir neikvæðu akurnesingar sem hafa tjáð sig hér láti það ekki bitna á flóttafólkinu þegar það kemur.

Ms Smith | 15. maí '08, kl: 11:28:29
0

SV: Akranes

Maður er bara orðlaus. Flóttamannanna vegna vona ég að það verði vel tekið á móti þeim annars staðan en á Akranesi. Þið talið um að það sé verið að taka á móti einstæðum mæðrum sem að leggjast á kerfið og bla bla bla, ekki gleyma því að þetta er stríðshrjáð fólk ekki "félópakk"! Sem að helmingurinn af ykkur virðist vera! Á örugglega eftir að gera meira gagn í þjóðfélaginu en þið! Skoðaðu hvernig flóttamenn sem að hafa komið hingað hafa plummað sig og orðið gagnlegt í þjóðfélaginu..........Og að kvarta yfir að þurfa að tala ensku þegar að ein hér (allavega ein) getur ekki einu sinni skrifað íslensku!

mus53 | 15. maí '08, kl: 12:16:48
0

SV: Akranes

Ms Smith, ert þú genginn í felagið "felópakk"! nei mer datt svona í hug að spyrja, því þeir sem eru í felaginu þekkjast oft, er þetta fólk sem er í þessu felagi eitthvað verra en annað fólk, þú ættir að gæta að því hvað þú segir svona á opnum vef og, og taka orðin þín til baka aftur, og ef þú ert ekki genginn í felagið þá þartu ekki að halda að þú sert eitthvað betri en þeir sem eru í félaginu, meigin reglan í þessu lífi er hjálpaðu þeim sem standa þer næst, áður en þú ferð að hjálpa öðrum,

Ms Smith | 15. maí '08, kl: 12:20:10
0

SV: Akranes

Alls ekki, og er ekki að setja út á einn né neinn sem að sækir aðstoð þangað, finnst það náttúrulega bara allt í fína. Þess vegna setti ég það innan gæsalappa. :S Það var búið að nota þetta í fyrri færslu. Að "þetta fólk" væri upp á féló komið! Sorry ef að ég móðgaði, fauk pínu í mig. Skammast mín geðveikt! :(

Gúrún* | 18. maí '08, kl: 00:03:53
0

SV: Akranes

Afsakaðu en þú ert frekar þröngsýn/n!
Það er ekkert allir hér með einhverjar persónuárásir á þessa flóttamenn! Ég vona innilega að þetta fólk fái alla þá aðstoð sem það þarf!
En eins og fram hefur komið áður í umræðunni þarf kannski örlítið að líta í eigin barm núna! Það sem fólk er að reyna að koma á framfæri að hér á Akranesi er félagskerfið löngu sprungið og ekkert húsnæði að fá! Það þarf að viðurkenna vandann sem er til staðar! Ef hlutirnir eru ekki að ganga upp hér í bænum varðandi félagsþjónustu, leiguhúsnæði, leikskóla og skólamál nú þegar, afhverju ætti það þá að ganga upp þegar bærinn heldur áfram að hlaða á sig verkefnum eins og þessu sem nú er fyrir hendi ?


Það er bara verið að reyna að beina umræðunni að því að hér er vandi fyrir, og margt sem þarf að laga áður en við getum farið að bjóða fram hjálp!

Það þarf ekki að vera að snúa þessu uppí rasisma og aðra eins vitleysu því þetta snýst ekki um það!

Það er hægt að skoða umræðu Magnúsar Þórs Hafsteinssonar inná www.akranes.is þar sem hann færir sín rök fyrir málinu.

  • Svara
  • Snarsvar
  • www.ER.is
SmartgerðurGlimmerbrók | 15. maí '08, kl: 11:44:00
0

SV: Akranes

Þetta er einn af þeim sorglegri þráðum sem ég hef lesið hérna inni.

Að sjá viðhorfið og skilningsleysið gagnvart flóttamönnum, fólk sem hefur verið hrakið burt frá heimili sínu, oftast með vopnavaldi, býr við ómennskar aðstæður og hörmungar sem við munum aldrei getað skilið fyllilega.

Við sem þjóð erum ekki of góð til að rétta hjálparhönd. Við getum og höfum efni á að hjálpa þessu fólki. Íslendingar hafa oft verið rausnarlegir þegar hörmungar hafa dunið yfir þjóðir og safnað töluverðum fjármunum fyrir fólk sem á um sárt að binda.
Eins hafa Íslendingar þegið aðstoð og fjármuni af öðrum þjóðum þegar hörmungar hafa dunið yfir okkur.

Okkur ber skylda til að hjálpa, siðferðisleg og lagaleg skylda til þess. Við getum það sem þjóð og höfum vel efni á því.

-------------
Light travels faster than sound. This is why some people appear bright until you hear them speak.

*Spain* | 15. maí '08, kl: 11:46:58
0

SV: Akranes

Mikið er ég sammála þér.

Ráðalítil | 15. maí '08, kl: 11:48:03
0

SV: Akranes

-ll-

Pandóra | 15. maí '08, kl: 12:49:42
0

SV: Akranes

Einmitt.

Ég vona að það fólk sem hugsar svona sé bara örfáar hræður, sem eru illa upplýstar.

Flódhesturinn | 18. maí '08, kl: 18:45:20
0

SV: Akranes

-II-

Esme | 17. maí '08, kl: 02:41:37
0

SV: Akranes

ÉG GAFST UPP Á AÐ LESA UMRÆÐUNA!!!

BÚHÚ!

_____________________________
gömul gæra í götóttum sokkum.
_____________________________
0 vikur

  • Svara
  • Snarsvar
  • www.ER.is
Esme | 17. maí '08, kl: 02:46:55
0

SV: Akranes

ég hélt að flestir íslendingar hefðu meira vit í kollinum en þetta. þessi þráður er sá svakalegasti sem ég hef á ævinni lesið. reynið aðeins að hugsa út fyrir ykkar litla, heimska haus. við erum að tala um fólk sem á sér engar lífslíkur nema það fái hjálp frá ríkum þjóðum eins og okkur. við erum að tala um börn sem eiga sér enga von nema komast út úr flóttamannabúðunum. mér býður við mörgum ykkar. þið eruð það ógeðslegasta sem skríður á jörðinni. fokkjú!

_____________________________
gömul gæra í götóttum sokkum.
_____________________________
0 vikur

er ekki | 17. maí '08, kl: 04:42:53
0

SV: Akranes

Já. Þessi umræða er með því ljótara sem ég hef lesið á þessum vef.

NöttZ | 17. maí '08, kl: 08:57:52
0

SV: Akranes

- ll -

_____________________________
Pirrað IKEA skrifborð óskar eftir nýju heimili:
http://bit.ly/cnGwEH

snsl | 17. maí '08, kl: 13:05:03
0

SV: Akranes

Fegin að ég er ekki sú eina sem læt ljót orð falla. Var með samviskubit yfir að hafa kallað eina tík og tussu :/
En þetta er rosalega mannvonska.

_______________

*...*Óska eftir skífusíma*...*

***Áttu borðuppþvottavél til að selja mér?***

:)

Esme | 17. maí '08, kl: 16:15:43
0

SV: Akranes

æ ég reiddist heiftarlega þegar ég las þetta, lokaði tölvunni og fór brjáluð í rúmið. kona á kannski bara að sleppa því að skoða umræður á bl/er eftir nokkra bjóra.

_____________________________
gömul gæra í götóttum sokkum.
_____________________________
0 vikur

snsl | 17. maí '08, kl: 23:54:30
0

SV: Akranes

Ég var einmitt ölvuð þegar ég byrjaði í umræðunni. Nýja mottóið mitt er samt að hlæja að svona fíflum, annars hætti ég seint að gráta.
Svo hugsaði ég miklu ljótari orð. Er bara svo dönnuð á BARNAlandi sjáðu til :)

_______________

*...*Óska eftir skífusíma*...*

***Áttu borðuppþvottavél til að selja mér?***

:)

Esme | 18. maí '08, kl: 01:31:26
0

SV: Akranes

satt segirðu kona, þú ert dönnuð. ég veit samt ekki hvort ég gæti hlegið þar sem ég læt tilfinningarnar stjórna mér óþarflega mikið.

_____________________________
gömul gæra í götóttum sokkum.
_____________________________
0 vikur

snsl | 18. maí '08, kl: 09:06:13
0

SV: Akranes

ertu ólétt?

en þetta lærist þegar maki manns og öll hans fjölskylda er flokksbundin "röngum" stjórnmálaflokki :o)

_______________

*...*Óska eftir skífusíma*...*

***Áttu borðuppþvottavél til að selja mér?***

:)

  • Svara
  • Snarsvar
  • www.ER.is
hala | 17. maí '08, kl: 06:31:26
0

SV: Akranes

Málið er að þessi móttaka flóttamanna frá Palestínu, er eitthvað sem Ingibjörg Sólrún er að slá sig til riddara á, í einni af sinni fjölmörgu utanlandsheimsóknum, á meðan hún er að flýja raunveruleikann og ábyrgð sína sem íslenskur ráðherra á Íslandi.

Það er mikið þægilegra að vera í sparistellingum í útlöndum, og láta ekki minna sig á eftirlaunarétt ráðherra og þingmanna og þykjast vera frelsari alheimsins eins og yfirfíflið fyrir vestan.

NöttZ | 17. maí '08, kl: 08:58:17
0

SV: Akranes

Hún er UTANRÍKISráðherra helvítis þrollinn þinn.

_____________________________
Pirrað IKEA skrifborð óskar eftir nýju heimili:
http://bit.ly/cnGwEH

snsl | 17. maí '08, kl: 13:05:52
0

SV: Akranes

Of flókið orðasamband.

_______________

*...*Óska eftir skífusíma*...*

***Áttu borðuppþvottavél til að selja mér?***

:)

  • Svara
  • Snarsvar
  • www.ER.is
mus53 | 17. maí '08, kl: 11:19:26
0

SV: Akranes

ekki veit ég hvað hún Ingibjörg Sólrún er að monta sig úti í útlöndum á okkar kosnað, og hlæja þar allan hringinn, þegar allt er í volæði herna heima og fullt af málum her óuppleist, það væri nær að spara þessar utanlagsferðir og láta peningana renna í mat handa svöngu fólki herna heima hjá okkur, það er nefnilega meira um það er við gerum okkur grein fyrir sem eiga ekki á milli hnífs og skeiðar, svo er alltaf verið að tala um það að þetta se svo rík þjóð,og þjóðin er á hausnum og allt í volæði, þetta eru nú meiri ríkidæmin, þú ert ekki maður með mönnum nema þú akir um á margra milljónar kr, jeppum, hver haldiði að eigi þessa bíla FÓLKIÐ, nei aldeilis ekki, það eru bankarnir sem eiga þetta bíla, svo eru þeir allir að steipast á hausin, þetta er mjög gáfulegt.

eftirsótt | 17. maí '08, kl: 11:47:06
0

SV: Akranes

eitt veit ég að ég er buinn að bua heima hjá móður minni nuna í einn og hálfan mánuð því það er ekkert húsnæði hér á skaganum svo ég skil bara ekki hvar á að setja fjölsk ef það er ekki til húsnæði fyrir okkur heima fólkið

Knús

Pandóra | 17. maí '08, kl: 11:52:01
0

SV: Akranes

Jæja.

Ég var svo hissa á þér að ég skellti nikkinu þínu í leitina, til að sjá hvort þú værir kannski tröll.

Þessi svör voru það fyrsta sem kom upp:

mús53 | 23. mars '07, kl: 18:04:56
SV: svik - tilkynning
hættiði þessu bölvuðu rugli,


mús53 | 23. mars '07, kl: 18:15:07
SV: svik - tilkynning
mer finnst það sniðugt að svindla á kerfinu, allir sem ég þekki svindla líka, og hafa það mjög huggulegt,


mús53 | 23. mars '07, kl: 23:36:19
SV: svik - tilkynning
það er eins gott að þú þekkir mig ekki, ég hef það mjög gott á kerfinu, og kvarta ekkert,


mús53 | 24. mars '07, kl: 16:06:03
SV: svik - tilkynning
eittspurningarmerki, myndi þer líða betur ef þú gætir bent á mig, þó svo ég se í bæjaríbúð og fái framfærslueyri hjá bænum, ég og maðurinn minn eigum saman heimili, þó svo hann se skráður annastaðar, hefuru ekki nó með sjálfan þig, þartu að vera velta þer uppúr öðrum,

mús53 | 24. mars '07, kl: 17:51:42
SV: svik - tilkynning
mer finnst svo mart fólk skammastsín fyrir það að vera á bænum, það skil ég ekki, því ég hef ekkert að skammastmín fyrir, og hef ekkert að fela, það eru svo margir í svona stöðu alveg eins og ég, eru þið að fara yfir stafsetninga villurnar, þið hafið ekki mikið að gera,


Umræðan í heild er hér: http://er.is/messageboard/messageboard.aspx?advid=6113666&advtype=52&showAdvid=6114121#m6114121

..og svo læt ég þar við sitja.

Brugsen | 17. maí '08, kl: 12:04:10
0

SV: Akranes

Þannig að það eru helst kerfissvindlarar Akranessbæjar og félagsmálakeis sem eru á móti því að aðstoða einstæðar mæður úr flóttamannabúðum. Smart!

Miðað við skrif músar53 er hún siðlaus aumingi og engin ástæða til þess að hlusta á svoleiðis pakk. Segi og skrifa pakk.

SmartgerðurGlimmerbrók | 17. maí '08, kl: 12:07:36
0

SV: Akranes

Af hverju er ég ekki undrandi?

P A K K

-------------
Light travels faster than sound. This is why some people appear bright until you hear them speak.

mus53 | 17. maí '08, kl: 12:14:26
0

SV: Akranes

ertu hissa á hverju, að ég se að setja það her inn sem ég er að hugsa,
er ekki öllum frjálst að hugsa, er ekki málfrelsi her eins og annastaðar,
ég held að það se í lagi að pústa her inn á meðan maður særir engann, því það sem þú lætur frá þer er ekki tekið til baka aftur, hafðu það á hreinu,

Pandóra | 17. maí '08, kl: 12:16:17
0

SV: Akranes

Finnst þér virkilega ekkert athugavert við það að svindla á kerfinu og þiggja bætur sem þú átt ekki rétt á - og halda því svo fram að Akranesbær geti ekki tekið á móti 5-8 fjölskyldum í viðbót, sem nota bene munu ekki þiggja framfærslueyri frá bænum, eins og þú virðist gera.

mus53 | 17. maí '08, kl: 12:44:20
0

SV: Akranes

ég ætla nú ekki að fara rífast við þig eða aðra her inni, en ætla aðeins að svara fyrir mig, ég þygg enga peninga frá bænum svo það se alveg á hreinu, og er í mínu eigin húsnæði. ertu að velta þer upp úr þessu, Mer finnst sniðugt að svindla á kerfinu, og allir sem ég þekki gera það líka, og hafa það mjög huggulegt, ójesús, ég var bara aðeins að æsa liðið upp, og hafði lúmst gaman af því, enda fekk ég líla að heyra það, og þá var bara tilgangnum náð, ég er að tala um það að mer finnst skelfilegt þetta ástand í þjóðfelaginu, eins og það er í dag, ef það skilur þetta ekki þá á það bágt. það er slæmt að vera fátækur og eiga ekki ofaní sig, eða á, ég ætla vona að þetta verði ekki miskilið,

Pandóra | 17. maí '08, kl: 12:50:52
0

SV: Akranes

Ég skil að sjálfsögðu vel að það sé slæmt að vera fátækur. Og það má alveg bæta aðstöðu þeirra sem eiga í alvörunni erfitt hér á landi (ekki kerfissvindlarar).

En A þarf ekki að útiloka B. Okkur ber siðferðileg skylda til að leggja okkar af mörkum innan alþjóðasamfélagsins, og þar með að taka við flóttamönnum. Við erum meðal þeirra fimm þjóða í heiminum þar sem lífskjör eru best, og við höfum vel efni á þessu. Og já, ég hef verið blönk, húsnæðislaus, og ég er einstæð móðir - en aðstæður mínar hafa aldrei verið svo slæmar að það hvarflaði að mér að það ætti ekki að hjálpa nauðstöddum.

Og mér finnst skína í gegn bæði mikil fáfræði og fordómar varðandi þessi mál, þannig að ef þín komment í flóttamannamálinu eru líka tilraun til að æsa fólk upp, þá er það gott. En endilega gluggaðu í þær upplýsingar sem hefur verið póstað hér inn um móttöku flóttamanna.

mus53 | 17. maí '08, kl: 13:09:49
0

SV: Akranes

þú mátt ekki halda það að ég se á móti flóttafólki, síur en svo, það er mjög gott mál ef við getum hjálpað, en því ver og miður getum ekki hjálpað öllum, þó svo við vildum , en það eru svo margir her sem þurfa á hjálp að halda og fá hana ekki, OG HVERJUM ER ÞAÐ AÐ KENNA ?

Pandóra | 17. maí '08, kl: 13:12:59
0

SV: Akranes

Ekki flóttafólkinu, svo mikið er víst.

Og okkur ber skylda til að hjálpa.

Það þarf eflaust að taka til í félagslega kerfinu, hjálpa fólki til sjálfshjálpar, meira eftirlit með því að ekki sé verið að svindla á kerfinu (því það tekur jú fjármagn frá þeim sem raunverulega þurfa á að halda), og almennt gera kerfið skilvirkara.

En það hefur ekkert með þáttöku okkar í alþjóðasamningum, eða mótttöku flóttafólks að gera.

SBjörk | 18. maí '08, kl: 12:54:37
0

SV: Akranes

Kannski þeim sem svíkja peninga út úr ríkinu eða bænnum sem gætu betur gagnast öðrum ?? Sorrý, þetta kemur bara svoldið illa út frá þér.

Flódhesturinn | 18. maí '08, kl: 18:49:12
0

SV: Akranes

Það er skelfilegt ástand á Íslandi af því að við erum að eyða skattpeningnum okkar í svona idiot eins og þig og fjölskylduna/vini þína. Motherfokkingkræst.

bauja | 17. maí '08, kl: 12:24:19
0

SV: Akranes

Já þetta heitir að vera AUMINGI með hor!!!! djöfuls heimska pakk.
Það fluttu flóttamenn í heimabæ minn þegar ég var yngri og þeim var mjög vel tekið, samt er bæjarfélagið með þeim fátækari á landinu, er á gjörgæslulista hjá fjármálaráðuneytinu (eða var það á þeim tíma allavega) og það hefur alltaf verið húsnæðisskortur þar. Fólkið í bænum var bara sammála að flóttamennirnir ættu við mikli meiri og stærri vanda að stríða (t.d. að komast úr lífshættu)en þessar beyglur sem lifa á féló, reyndar fluttu flestir á suðvesturhornið þegar þau voru komin inn í íslenska samfélagið og farin að geta bjargað sér, skil þau vel því þar er betri vinna og betur borguð en á mínum gömlu heimaslóðum, en hverjir sitja þar eftir.... jú félópakkið sem situr heima og grenjar yfir því hvað allir eru vondir við það!

DirtyBlonde | 18. maí '08, kl: 11:09:11
0

SV: Akranes

Kerfisfræður.........

Ef við gætum losnað við þá af spenanum væri nóg til handa þeim sem virkilega þurfa á því að halda. Get engan ekki borið virðingu fyrir svona fólki sem svindlar á kerfinu sem byggt er upp á m.a. mínum sköttum og gera það að verkum að þurfandi fólk fær oft ekki þá aðstoð sem það þarf.

-------------------
DirtyBlonde
Kreppugötu 1
101 Græðgisvík
Príshlandi

Flódhesturinn | 18. maí '08, kl: 18:47:43
0

SV: Akranes

Fallegt. Greinilega Kerfisfræðingur þessi.

Seascape | 17. maí '08, kl: 13:11:06
0

SV: Akranes

Ertu að segja að við ættum að styrkja fólkið sem hefur ekki hnífs og skeiðar vegna þess að afborganir lúxusjeppanna eru að sliga það upp að því marki að það bókstaflega lepur dauðann úr skel?

Esme | 17. maí '08, kl: 16:18:40
0

SV: Akranes

brilljant rök!

_____________________________
gömul gæra í götóttum sokkum.
_____________________________
0 vikur

lydia | 17. maí '08, kl: 23:36:32
0

SV: Akranes

Við ættum kannski að biðja tónlistarfólk að halda svona Aid tónleika fyrir Íslendinga sem eiga ekki nóg af peningum vegna þess að þeir hafa skuldsett sig upp fyrir haus og geta núna ekki borðað humar og kavíar í hvert mál!!!

Ég veit vel að sumir á Íslandi eiga um sárt að binda, og auðvitað má alltaf betur gera til þess að hjálpa þessu fólki. En það er ekki þar með sagt að við getum lokað augunum fyrir því sem er að gerast í heiminum í kringum okkur!!!
Það eru ekki sveltandi börn á Íslandi!! Það er kannski svöng börn og auðvitað þarf að laga það, en það tekur tíma! Stundum þarf fólk líka að læra að hjálpa sér sjálft!

Kveðja Lýdía

--------------------------------------------------------------------------------

  • Svara
  • Snarsvar
  • www.ER.is
hertoginn | 17. maí '08, kl: 12:57:59
0

SV: Akranes

Ég vona að það haldi ekki allir að á Akranesi búi bara rasistar og aumingjar, þó svo að í þessari umræðu líti það þannig út:/

En mér finnst allt í lagi að fjölskildurnar komi hingað.

Það sem mig langar samt að heyra frá bæjarstjórn eða félagsmálaráðuneytinu er: Hvaða íbúðir fá þessar fjölskyldur??

Mér finnst eins og það sé bara almmennur skortur á leiguhúsnæði hér í bæ.

carnee | 17. maí '08, kl: 16:20:58
0

SV: Akranes

svona umræðan sem mér finnst ég heyra frá skagamönnum er að það sé nú ekki nógu vel hlúð að þeim sem minnst hafa,og þeim sem þurfa á því að halda og búa þarna og hafa jafnvel alltaf búið þarna, og þessvegna finnist fólki hálf svona skrýtið að þetta skuli vera hægt. Og það lykti af svona "auglýsingu" fyrir bæjinn,og ekkert meir.

en ég veit ekkert um þetta nema það sem ég hef heyrt. bý ekki þarna og er ekki þaðan.

SBjörk | 18. maí '08, kl: 13:01:29
0

SV: Akranes

Margt sem kemur hér fram frá Skagamönnum kemur því miður mjög illa út. Vil alls ekki meina að þessar skoðanir séu einkennandi fyrir alla hér - í rauninni bara fyrir mjög fáa.

  • Svara
  • Snarsvar
  • www.ER.is
Seascape | 17. maí '08, kl: 13:08:42
0

SV: Akranes

Fínt, kannski hleypir einhverju lífi í þetta steindauða pleis. Vorkenni flóttamönnunum mest, það eina jákvæða við Akranes er nálægðin við höfuðborgina, annars er þetta ömurlegasti bær á landinu.

SBjörk | 18. maí '08, kl: 12:58:56
0

SV: Akranes

Og hvað hefur þú fyrir þér í því annað en eigið álit ?? Getur ekki fullyrt svona ein og sér. Mér finnst mjög gott að búa hérna og svo er með flesta sem ég þekki.

  • Svara
  • Snarsvar
  • www.ER.is
táin | 17. maí '08, kl: 13:48:24
0

SV: Akranes

OMG segið mér að þessi umræða sé grín... ekki er fólk svona heimskt og sjálfhverft :(

Suuperstar | 17. maí '08, kl: 23:41:51
0

SV: Akranes

æji skil ekki svona rugl..

Þetta er fólk er velkomið hingað, einstætt og fjölskyldur..

Er ekki Akranes bara eins og flest önnur bæjarfélag okkur vantar alltaf eitthvað... Listinn er ótæmandi.. Ef eitthvað er aflokið þá kemur annað inná..

Vona bara að þetta fólk geti bara lifað góðu lífi

snsl | 17. maí '08, kl: 23:57:14
0

SV: Akranes

Elsku fótboltamamma. Ég væri til í að starta söfnun fyrir þig svo þú komist úr þessu bæjarfélagi. Hlýtur að vera ÖMURLEGT að búa í nálægð við svona þröngsýnt hyski. Látum þau bara hanga þarna á skaganum í friði :)

_______________

*...*Óska eftir skífusíma*...*

***Áttu borðuppþvottavél til að selja mér?***

:)

flögri | 18. maí '08, kl: 00:06:48
0

SV: Akranes

Afhverju heldurðu að það sé eitthvað ömurlegt að búa hérna???
Höfum við verið að segja það???
Þetta er fínn bær.
Mætti bara fara að drullast til að taka sig á í sambandi við félagslega kerfið og helvítis klíkuskapinn í bæjarstjórn.

Er ekkert á móti þessum flóttamönnum sem slíkum.
Er bara ósátt við að þeð sé verið að taka á móti fólki þegar það eru ekki nein úrræði handa fólki sem er búið að búa hér í fjölda ára.

Er sjálf búin að þurfa að berjast við þetta félagsmálabatterí hérna þannig að maður veit aðeins hvernig ástandið með það er.

Veit að þetta er ekkert skárra á mörgum öðrum stöðum. En það er ekki verið að ræða alla hina staðina.
Heldur Akranes.
Finnst helvíti skítt ef þeir telja sig tilbúna til að geta hjálpað 30 útlendingum en ekki 30 íslendingum. Hefði haldið að til þess að geta hjálpað öðrum þyrftum við fyrst að geta hjálpað fólkinu í okkar eigin landi.

snsl | 18. maí '08, kl: 00:12:34
0

SV: Akranes

Ætti þá ekki að setja blátt bann við búferlaflutningum til Akraness? Það gætu 30 íslendingar flutt þangað, margir hverjir sem hafa hugsað sér að lifa á spenanum í lengri tíma. Reynslan sýnir að flóttamenn gera það ekki heldur spjara sig vel á eigin spýtur.

Og ef það væri von á flóttamönnum, er ekki líklegt að fólkið tæki sig saman í andlitinu?
Svo mætti ræða það að vanda valið betur í næstu kosningum.

_______________

*...*Óska eftir skífusíma*...*

***Áttu borðuppþvottavél til að selja mér?***

:)

Brugsen | 18. maí '08, kl: 00:17:09
0

SV: Akranes

Ætti ekki bara að loka Akranes af frá þjóðveginum og restinni af landinu?

Í Palestínu er "vinsælt" að loka bæjum með því að sturta haug af sandi á veginn svo að enginn komist inn eða út á bíl.

Skagamenn ættu að gera þetta til þess að tryggja að enginn flytji í bæinn næsta árið. Ég skora á ykkur!

snsl | 18. maí '08, kl: 00:27:22
0

SV: Akranes

Ættum við að flytja út á Skaga, upp á djókið? Ég á allavega einn krakka til að setja á biðlista eftir leikskóla. Gæti kannski reddað öðrum.
Það gæti orðið soldið fyndið, ha. Sækjum um mismunandi styrki og svona, sötrum svo mojitos og hlæjum að nágrönnunum.

_______________

*...*Óska eftir skífusíma*...*

***Áttu borðuppþvottavél til að selja mér?***

:)

Pandóra | 18. maí '08, kl: 00:28:47
0

SV: Akranes

Gætum eflaust náð saman í 5-8 einstæðar mæður plús börn á örskömmum tíma ;o)

Gúrún* | 18. maí '08, kl: 00:21:52
0

SV: Akranes

Já það sem kosið var í bæjarstjórn situr eiginlega ekki eftir!

Þessi blessaða bæjarstjórn er í einhverjum sandkastalaleik!

Ekki kaus ég sjálfstæðismenn til þess að stjórna bænum, heldur kaus ég frjálslynda! Þeir ásamt sjálfstæðismönnum mynduðu meirihluta sem var í lagi!
En núna þegar fólk verður ósammála er bara snúið sér við og gengið til liðs við annan flokk og sent aðra út í kuldann!

Finnst þetta orðið að einum skrípaleik sem segir aðeins hvernig málin eru hjá þessari blessuðu stjórn!

Leið og fólk verður ósammála er sett eina mannin sem hafði eitthvað vit þarna út í kuldann!

snsl | 18. maí '08, kl: 00:24:05
0

SV: Akranes

Það að þú hafir kosið frjálslynda hjálpar málstað þínum í þessarri umræðu ekki baun i bala. Hefðir betur haldið því fyrir sjálfa þig.

_______________

*...*Óska eftir skífusíma*...*

***Áttu borðuppþvottavél til að selja mér?***

:)

Pandóra | 18. maí '08, kl: 00:26:28
0

SV: Akranes

nei ertu enn hérna!

Þetta ætlar að vera umræðan endalausa, greinilega ;o)

Gúrún* | 18. maí '08, kl: 18:39:01
0

SV: Akranes

Fyrri færsla vinan!
Það var verið að spurja mig afhverju ég hefði kosið þessa bæjarstjórn ef ég er svona ósátt með hana!


Ég er einfaldlega bara að svara því sem ég var spurð að!

Brugsen | 18. maí '08, kl: 00:28:13
0

SV: Akranes

Svona er pólitíkin.

Ekki voru Frjálslyndir svona heilagir þegar Valdimar Leó fyrrum þingmaður gekk til liðs við þá úr Samfylkingunni. Þá var fínt að fá mann úr öðrum flokki inn í ykkar flokk áður en kjörtímabili lauk.

Hvernig væri að þið "frjálslynd" reynduð að vera sjálfum ykkur samkvæm, svona einu sinni?

gh | 18. maí '08, kl: 00:30:42
0

SV: Akranes

Og ekki gleyma hinum síflakkandi Kristni Gunnarssyni, sem gekk til liðs við þingflokk Frjálslynda á síðasta kjörtímabili.

*Survivor*

flögri | 18. maí '08, kl: 00:30:41
0

SV: Akranes

Held að það verði seint hægt að gera ráð fyrir því að bæjarstjóratrúðurinn og hans fylgifiskar taki sig saman í andlitinu og geri eitthvað sem kæmi bænum til góðs.
Þeir gera bara það sem kemur vel út fyrir þá. Þeir halda að með því að taka á móti flóttamönnum afli þeir sér fylgis fyrir næstu kosningar en held það virki öfugt hjá þeim í þetta skiptið.
Ég hef minnstar áhyggjur af því að þessar konur hangi á spenanum til dauðadags.
Bara skil ekki hvar á að finna íbúðir fyrir þær þegar þeir geta ekki fengið íbúð fyrir fólk sem er í verulega miklum húsnæðisvandræðum.

Ef aðstæður hérna væru aðrar þá væri ég heilshugar hlynnt því að þessar konur kæmu hingað. En meðan ástandið er svona þá er ég ekki bjartsýn á þetta.

Brugsen | 18. maí '08, kl: 01:02:28
0

SV: Akranes

Ástandið, já.

Ísland varð efst í fyrra á þróunarlista Sameinuðu þjóðanna. EFST. Við erum s.s. þróaðasta ríki heims, skv. þeim. Þarna er m.a. mæld meðalævi, meðaltekjur og fleira.

Hér er hvað, innan við 2% atvinnuleysi. Með því allra lægsta sem þekkist. Hér er ekki margt heimilislaust fólk og raunveruleg fátækt er varla til hér, ef miðað er við mörg önnur lönd.

Samt lætur sum tfólk eins og 30 manns, konur og börn, muni setja samfélagið á hliðina. Helvítis aumingjaskapur og væl, segi ég bara. Ef við erum ekki aflögufær, hver í andsk. er það þá?????

irissb | 18. maí '08, kl: 01:40:33
0

SV: Akranes

það er rangt að það séu mældar meðaltekjur..

alla vega þegar ég var að stúdera þetta, þú ert að tala um HDI er það ekki?

þróunarvísitölu sameinuðu þjóðanna..

samkv. því sem að okkur var kennt var eina sem tengdist fjármálum sem spilaði inn í verg þjóðarframleiðsla..

sem er svona há hér því að það eru bara nokkrir sem að eiga allt meðan hinir ströggla við að vera meðaljónar

Gúrún* | 18. maí '08, kl: 18:44:45
0

SV: Akranes

Það sem Isbirna er að reyna að segja við þig vinan er að hún er ekki alveg að skilja hvernig þetta er hægt miðað við ástandið á Akranesi ekki ísalndi öllu!

Hér er ekki einu sinni hægt að fá 2.herbergja íbúð á almennum leigumarkaði, hvernig á þetta þá að vera hægt ?

Frystihúsinu hefur verið lokað og fjölmargar konur hér atvinnulausar eftir þá uppssögn eflaust einhverjar einstæðar mæður líka!

Það er ekkert verið að segja að við viljum ekki fá flóttafólkið, fólk er líka að velta því fyrir sér hvernig þetta er hægt, hvar konurnar eigi að fara að vinna!
Það er ekkert mikið um það lengur!

lydia | 18. maí '08, kl: 09:08:07
0

SV: Akranes

Gæti kannski hugsast að ríkið kaupi íbúðir fyrir þessar fjölskyldur sem svo Akranesbær fengi til yfirráða eða kaupa eftir árið??

Kveðja Lýdía

--------------------------------------------------------------------------------

Esme | 18. maí '08, kl: 01:34:35
0

SV: Akranes

sjitt hvað ég vorkenni þér. helvítis krakkarnir í palestínu eiga ekkert að vera að flandrast hér, þau gætu truflað okkur við tölvuna.

_____________________________
gömul gæra í götóttum sokkum.
_____________________________
0 vikur

lydia | 18. maí '08, kl: 09:03:44
0

SV: Akranes

En þessar fjölskyldur yrðu ekki á framfæri bæjarins! Heldur ríkisins.

Kveðja Lýdía

--------------------------------------------------------------------------------

Suuperstar | 18. maí '08, kl: 14:31:32
0

SV: Akranes

fólk hlítur að sjá það að þessar mömmur geta auðveldlega farið í vinnu uppí álveri. Það er engin að segja mér að þær séu allar með börn undir eins árs sem þarf að vera heima hjá allan sólahringin.. Ég veit ekki betur en það þarf alltaf fólk uppí vinnu uppí norðurál..

Svo vantar fólk í skúringar uppá sjúkrahús, það vantar augljóslega fólk í vinnu í krónuna... Meina ég væri fengin að sleppa við 5 mínútna röð í krónunni þó afgreiðslukonan kunni ekki annað en að brosa!

Þetta er ekkert heimsendir... en þó himnasending fyrir börn og konur sem koma til Akranes..

Walter | 18. maí '08, kl: 01:12:11
0

SV: Akranes

Ég er rosalega hrædd um manninn minn!!

________________________________________________________________


*Kolkumagzhuggywaltgolsskottforlifegrjonjúbbspainthyst*



*Walter Erlingsdóttir móðursystir*

mus53 | 18. maí '08, kl: 01:24:49
0

SV: Akranes

já veistu, að fá svona sendingu í pósti, í svona lítið bæjarfelag, það hlítur að vera gaman, körlunum í bænum ætti nú aldeilis ekki að leiðast,
það kemur kannski blóðrásinni á stað, og hjartanu til að slá hraðar,

Walter | 18. maí '08, kl: 01:28:19
0

SV: Akranes

Mæli með að læsa dýrin inni og henda lyklunum!
Þessar konur hljóta vera skaðræðisgripir miða við æsinginn!!

________________________________________________________________


*Kolkumagzhuggywaltgolsskottforlifegrjonjúbbspainthyst*



*Walter Erlingsdóttir móðursystir*

mus53 | 18. maí '08, kl: 01:37:02
0

SV: Akranes

já þú meinar það, að læsa dýrin inni og henda síðan lyklunum, þetta er stór sniðug hugmynd, þú ert ekki svo galin,

Walter | 18. maí '08, kl: 01:39:45
0

SV: Akranes

Ég er svo lítið galin að ég mun halda mig fjarri Akranesi um alla ævi. Þakka fyrir Hvalfjarðargöngin!

________________________________________________________________


*Kolkumagzhuggywaltgolsskottforlifegrjonjúbbspainthyst*



*Walter Erlingsdóttir móðursystir*

Betty Boop | 18. maí '08, kl: 02:00:35
0

SV: Akranes


Og þetta er langur og leiðinlegur
þráður,
hættið að að uppa hann.

mus53 | 18. maí '08, kl: 02:32:12
0

SV: Akranes

ha varstu að segja eitthvað,nú snýst málið um það hvert eigi að læsa púkana inni eða hafa þá lausa, þegar gellurnar mæta,

jellómelló | 18. maí '08, kl: 03:08:38
0

SV: Akranes

Ertu að segja að við ættum að styrkja fólkið sem hefur ekki hnífs og skeiðar vegna þess að afborganir lúxusjeppanna eru að sliga það upp að því marki að það bókstaflega lepur dauðann úr skel


VÁ ER SVO SAMMÁLA ÞESSU!! ENGINN ÞARF AÐ VERA SVANGUR Á ÍSLANDI NEMA HANN EIGI VIÐ EINHVERSKONAR FÖTLUN AÐ STRÍÐA!!

  • Svara
  • Snarsvar
  • www.ER.is
juni | 18. maí '08, kl: 10:45:45
0

SV: Akranes

30 manns á Akranes eru eins og að 550 manns komi til Reykjavíkur svo þetta er ansi stór hópur. Mér finnst mjög eðlilegt að skagamenn vilji vera betur í stakk búnir til þess að taka á móti flóttafólki. Það væri mun eðlilegra að skipta þessum hóp niður á nokkur sveitafélög, bæði svo fólkið fái almennilega hjálp og að það bitni ekki á þeim sem fyrir eru. Það er td. nýbúið að segja upp nokkrum konum sem unnu í HB og ef þessir flóttamenn koma þá ber bænum skylda til þess að útvega þeim vinnu framyfir konurnar sem misstu vinnuna. Það er hvergi talað um að Akranesbær vilji ekki hjálpa þessu flóttafólki, þeir vilja bara skoða vel málið og athuga hvort um aðrar leiðir séu að ræða.

Mikið eru sumar hér orðljótar og dómharðar í garð skagamanna og þeirra sem eru að tjá sig um þetta mál. Ég varð bara orðlaus þegar ég las þessa umræðu í gærkvöldi. Hafið þið kynnt ykkur þetta mál og lesið allt sem því fylgir?

this | 18. maí '08, kl: 11:49:21
0

SV: Akranes

fólk hérna í bænum viðurkennir þó að vandamál séu hérna og bærin sé ekki tilbúin í svona stórt verkefni.

Fólk sem þarf á hjálp hér að halda fær ekki þá hjálp sem þau þurfa. leiguhúsnæði eru einginn. Hér er sko slegist um íbúðir sem koma á leigu. Svo hvar eiga þau að eiga heima? æji held það sé ekki alveg búið að hugsa dæmið til enda. Nú ef þau ætla kaupa hús undir þau þá þarf nu að fara huga að því. Ég held að bærin sé betur tilbúin síðar. Kanski taka á móti næsta hópi. þá er hægt að fara undir búa þetta fyrr. ( byrja að undir búa Skagamenn sem þurfa á undirbúning að halda svo þeir fái ekki kvíðakast;))

Svo eru allri að tala um að það hljóti að vera slæmt að búa hérna.
En ég hef búið í rvk og ég munn aldrei flytja þangað aftur hér er yndislegt að búa.

Gott fyrir flóttamenn að búa hér en eins og ég sagði held ég að bærin sé betur tilbúin þegar búið er að hjálpa fólkinu hérna. Taka á móti næsta hópi myndi ganga kanski betur í fólkið.
Þá eru líka komnar íbúðir kanski fyrir fólkið til að búa í og búið að laga skólamálin og annað.
Þetta er einhvað sem þarf meiri tíma til að hugsa til enda heldur en einhver klíkuskapur í bæjastjórn samþykkir í hraði.

En vonandi fær þetta fólk þá hjálp sem það þarf á að halda. En kanski er bara best að dreifa aðeins niður fólkinu sem sagt. því þetta er ansi stór hluti fyrir Akranes bæ.

Vinna fyrir þær. Eins og staðin er í dag í bænum er eingin vinna að hafa fyrir þær. Ekki myndi ég senda þær/þau með stædó til Reykjavíkur enda fólkið kerfið þar.
Eins og sumir hafa bent á hafa morgum verið sagt upp í HB og því eingin vinna þar að hafa. þeir sem ekki hafa vinnu á akranesi eiga kanski ekki efná því að sækja vinnu í höfuðborgina.

En vonandi finnst lausn á þessu máli og allir verða sáttir:)

Brugsen | 18. maí '08, kl: 12:27:03
0

SV: Akranes

Skólakerfið er greinilega ekki í nægilega góðu lagi á Akranesi, þar sem margir íbúar (alla vega þeir sem skrifa hér) virðast ekki hafa sérlega góð tök á íslensku máli.

En ég blæs satt að segja á tal um að það sé enga vinnu að hafa á Akranesi. Það er talsvert um það að fólk sem býr á Akranesi vinni í Reykjavík og öfugt. Ég þekki konu sem ók á milli allan ársins hring og aðra sem ferðast með strætó á milli Akraness og Reykjavíkur daglega.

Víða erlendis þykir það ekki tiltökumál að ferðast í 40-60 mín í vinnu. Ég bjó sjálf í stórborg erlendis þar sem ökuleið mín í vinnu var klukkutími hvora leið og það var þegar veðrið var gott. Fólk sem býr á Keili tekur strætó eða ekur í bæinn.

Eru Akurnesingar upp til hópa svo fatlaðir að þeir geti ekki notað strætó, eða hvað er málið?

marky | 18. maí '08, kl: 12:53:15
0

SV: Akranes

æi gætuð þið hætt að líta á þessa örfáu sem hafa skrifað hérna sem meirihluta skagamanna? Þetta er orðin and-skagamanna umræða hérna útaf nokkrum hræðum. Efast ekki um að meirihlutinn vill taka við þessum konum þó að það fólk sé ekki allt á barnalandi að tjá sig.

og strætóinn er mjög mikið notaður og enn fleiri sem keyra sjálfir á milli.

SBjörk | 18. maí '08, kl: 13:24:56
0

SV: Akranes

Ég er búin að nota strætó til að fara í skóla suður frá því að hann byrjaði að ganga hérna á milli og er því dauðfegin að vera að útskrifast núna og losna við fleirri strætóferðir - finnst þessar ferðir ansi lýjandi. Það tekur mig 35 mínútut að keyra í skólann sem er í góðu lagi utan þess háska sem ég hef lennt í á keyrslu minni um Kjalanesið - orðin ansi bílhrædd (og lífhrædd;) eftir þær ferðir. En það tekur mig 75 mínútur að fara með strætó. Ég er fegin því að vera ekki með börn á leikskólaaldri því það hefði verið mikið púsluspil. Strætó fer kannski ekki alltaf á þeim tíma sem henntar - þetta er ekki eins og í R.vík þar sen strætó gengur á 15-30 mín. fresti. Ég er svekkt yfir mörgu sem sumir Skagamenn hafa látið frá sér fara hér inni - það er svo alls ekki lýsandi fyrir alla þá sem hér búa. En ég er hjartanlega sammála þeim Skagamönnum sem svara hér fyrir ofan - juni og this - hér er mjög gott að búa og ég gæti hvergi annarstaðar hugsað mér að búa - þarf bara mikið að taka til í bæjarmálum og koma mögum trúðum úr bæjarstjórninni.

Gúrún* | 18. maí '08, kl: 18:51:28
0

SV: Akranes

Þú ert bara ein þröngsýnasta og leiðinlegasta manneskja sem ég hef lesið skrif frá!

Þú dæmir alla sem einn og hraunar bara yfir fólk !

Er þetta fáfræðin að tala ?

  • Svara
  • Snarsvar
  • www.ER.is
mus53 | 18. maí '08, kl: 13:40:09
0

SV: Akranes

fólk er orðið heitt í hamsi að tala um þessar fjölskyldur, ég hef aðeins pústað her inn, auðvita er það mjög gott mál að geta hjálpað, en það er erfitt að hjálpa öllum, það er bara sárt að vita til þess hvað eru margir sem þurfa á hjálp að halda, og við spáum lítið í það hvað við höfum það gott,

Brugsen | 18. maí '08, kl: 18:29:24
0

SV: Akranes

Einmitt, við HÖFUM það gott og þess vegna getum við alveg hjálpað öðrum.

Ef ein ríkasta þjóð heims er ekki aflögufær, hver er það þá?

Ég vona að Skagamenn sem eru EKKI sammála Magnúsi Þór láti í sér heyra á opinberum vettvangi.

NöttZ | 29. október '08, kl: 10:04:18
0

SV: Akranes

Hvernig er stemmarinn á Skaganum núna?

_____________________________
Pirrað IKEA skrifborð óskar eftir nýju heimili:
http://bit.ly/cnGwEH

reyndar | 29. október '08, kl: 10:07:37
0

SV: Akranes

Ja, ég er búin að vera á milli íbúða og er búin að vera mikið rétt fyrir utan akranes hjá mömmu og ekki hefur þetta blessaða fólk verið fyrir mér...

  • Svara
  • Snarsvar
  • www.ER.is
babybaun | 29. október '08, kl: 10:25:26
0

SV: Akranes

Þetta er auðvitað svolítið stór hópur fyrir svona lítinn bæ og maður fer ekki útí búð án þess að rekast á einhvern af þeim en það er bara allt í lagi að mínu mati.

Með kveðju,
babybaun
www.snilldarborn.com Öðruvísi barnavörur,
Taubleiur, ullarbuxur, baðdót, nagsnuð ofl. -- Erum á Akranesi

reyndar | 29. október '08, kl: 10:29:05
0

SV: Akranes

Það er eitthvað sem að ég hef ekki tekið eftir.

Weleda | 29. október '08, kl: 10:44:01
0

SV: Akranes

Þetta er bara hið besta mál. Flóttafólkið er mjög ánægt hér og ég held ég geti bara talað fyrir hönd akurnesinga að þetta er bara frábært fólk og það eru engar neikvæðar raddir hérna út í þetta fólk. Mér finnst líka akurnesingar hafi verið misskildir. Allir hafi verið settir undir sama hatt og haldið því fram að akurnesingar væru fordómafullir. En þetta voru bara nokkrir einstaklingar sem töluðu svona. Er þetta ekki alltaf svona allstaðar! það eru alltaf einhverjir fáir sem eyðileggja fyrir öðrum þ.e.s.a heilum bæ.
En allavega þá er flóttafólkið alveg til fyrirmyndar og gengur vel að aðlagast. Það voru reyndar minniháttar mál sem þurftu að kenna þeim t.d. þau gengu á götunni, vissu ekki að það ætti að ganga á gangstéttum, þannig að því var bara kippt í liðinn og þau var skellt í umferðarfræðslu.
Ég átti ekki til orð t.d. þegar ég heyrði eina konuna tala íslensku í gær, hún gat alveg bjargað sér á íslenskunni. Miðað við að vera bara búin að eiga heima hérna í c.a. 2 mánuði. Það sýnir greinilega áhugann hjá fólkinu að aðlagst.
Þannig að fólkinu gengur bara vel hérna og allt er í ró og spekkt á skaganum.

NöttZ | 29. október '08, kl: 10:46:25
0

SV: Akranes

Frábært að heyra þetta.

_____________________________
Pirrað IKEA skrifborð óskar eftir nýju heimili:
http://bit.ly/cnGwEH


Svara
X
 

Fyrirsögn Nafn Dagur Uppfært
Nýjar buxur? KuTTer 31.7.2010 31.7.2010 | 21:27
Er alveg stranglega bannað og dónalegt miss jay 30.7.2010 31.7.2010 | 21:24
Hvar fær maður rabbabara? miramis 31.7.2010 31.7.2010 | 21:12
Hvar er allt fólkið roxanne2 31.7.2010 31.7.2010 | 21:04
Auglýsingar sem þið þolið ekki? Lúsifer 30.7.2010 31.7.2010 | 21:02
Burðarpoki fyrir göngur anna007 28.7.2010 31.7.2010 | 20:51
New York í febrúar! Alfa78 30.7.2010 31.7.2010 | 20:49
Jæja gott fólk.. miss540 31.7.2010 31.7.2010 | 20:43
Fákflug 2010 á Vindheimamelum agg2312 22.7.2010 31.7.2010 | 20:40
Ég elska þig! links 31.7.2010 31.7.2010 | 20:33
Tilbúið undir tréverk, en breyta... ansapansa 31.7.2010 31.7.2010 | 20:17
Vitið þið hvar ég get keypt steinakarla frá Auði G uppalandi 31.7.2010 31.7.2010 | 20:15
hvernig í fjáranum strumpa2 31.7.2010 31.7.2010 | 20:08
ertu fyrir svertingja Sandra4black 31.7.2010
Mig vantar að kaupa gjafir. KuTTer 31.7.2010 31.7.2010 | 20:00
Stolinn racer , blátt yamaha r6 keilirx 27.7.2010 31.7.2010 | 19:52
Áttu uppskrift zingiber 31.7.2010 31.7.2010 | 19:24
Iphone vs. Nokia n97 mini B52 30.3.2010 31.7.2010 | 19:23
Mikka roxanne2 31.7.2010 31.7.2010 | 19:22
Hversu mikið í mat á mánuði? Saidy 31.7.2010 31.7.2010 | 19:21
Indverskur með heimsendingarþjónstu? stjaki 31.7.2010 31.7.2010 | 19:12
Mozilla og auglýsingar Krónískur klaufi 30.7.2010 31.7.2010 | 19:08
Nennið þið að fara með gæludýramyndir og umræður Mommsí 30.7.2010 31.7.2010 | 18:58
Vantar smá hjálp með fondant/sykurmassa óskabarn 30.7.2010 31.7.2010 | 18:34
Frí í köben. bjorgh 31.7.2010 31.7.2010 | 18:33
Ein skrýtin spurning.. trjástofn 31.7.2010 31.7.2010 | 18:26
er ég sú eina sem fékk ekki borgað? Lúsifer 31.7.2010 31.7.2010 | 18:25
 [Könnun] Hversu mikilvægt Aslup 31.7.2010 31.7.2010 | 18:23
Aðeins meira um Aspartame :) juggernaut 31.7.2010
síður til að downloada gamallkarl 31.7.2010 31.7.2010 | 18:21
Svefntjöld sveitastelpa 31.7.2010
Mikill svimi, hvað get ég gert? trjástofn 31.7.2010 31.7.2010 | 18:18
Ferðin roxanne2 31.7.2010 31.7.2010 | 18:14
Týnt hjól í njarðvík starlet 31.7.2010
Hvaða bh stærð ertu? Napoli 30.7.2010 31.7.2010 | 17:58
Síða 4 af 17565 síðum
Fyrst síðan Síðasta síðan  1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 Áfram 
 
 
 

http://er.is | Notkunarskilmálar | API | Auglýsingar

© 2000-2010 er.is
Öll réttindi áskilin. Um fyrirtækið | S1

http://er.is

© 2000-2010 er.is
Öll réttindi áskilin. | S1

úff er ekki vont að vera í svoleiðis sokkum? ég get ekki ...
- Lúsifer - að vera með bjúg..