Til þess að skrá nýja auglýsingu/umræðu, svara auglýsingu/umræðu, taka þátt í könnun eða að fá prentvæna útgáfu af auglýsingu/umræðu, þá
þarftu að vera skráð(ur).
til að styrkja ekki fyrrverandi auðmenn, mig langar að kjósa með fótunum og versla bara við heiðarlegt fólk. getiði komið með komment um hvar er gott að versla og hvar vont í þessu samhengi og af hverju.
Antaros | veit ekkert um það
en ég fór til köben í vor og allt í góðu með
Þessar snotty...
Antaros
| 1. ágúst '10, kl: 08:57:58
| Alls sótt: 0
0
SV: Hvar eigum við að hætta að versla ?
veit ekkert um það en ég fór til köben í vor og allt í góðu með Þessar snotty flugfreyjur hjá icelandair voru frábærar við mig. Í þessari ferð voru líka krakkar 12-15 ára í einhverri hópferð og þau fengu sko allt aðra og verri þjónustu en ég. Þau þurftu að kalla eftir að fá vatn meðan mér var boðið það og fengu það með svona leiðinda attitjúdi.
Ozzy | já:) t.d umboðsmaður skuldara sem ríkistjórninn var að ráða með margar miljón...
Ozzy
| 1. ágúst '10, kl: 08:55:54
| Alls sótt: 0
+4
SV: Hvar eigum við að hætta að versla ?
já:) t.d umboðsmaður skuldara sem ríkistjórninn var að ráða með margar miljónir afskrifaðar, það er ekki neinn heill á þessu landi, skrpaleikurinn heldur áfram, þá hugsar bara hver um sig
panam | í dag kannski en ef þú horfir á heildarmyndina þá er það búið að vera frekar ...
panam
| 1. ágúst '10, kl: 09:05:34
| Alls sótt: 0
0
SV: Hvar eigum við að hætta að versla ?
í dag kannski en ef þú horfir á heildarmyndina þá er það búið að vera frekar dýr kostur fyrir þjóðarbúið og fólk verður að hugsa um almannahag til að koma þjóðinni á skrið aftur.
tinnus1 | þú hefur greinilega takmarkaðan skilning á því af hverju kreppan er eins slæm...
tinnus1
| 2. ágúst '10, kl: 00:02:00
| Alls sótt: 0
+2
SV: Hvar eigum við að hætta að versla ?
þú hefur greinilega takmarkaðan skilning á því af hverju kreppan er eins slæm og hún er á íslandi.
TIl að gera langa sögu stutta þá geriru illt vera með því að styða við þetta lið og gera því kleift að halda sínum viðskiptasiðum áfram.
Antaros | Þú hefur enn minni skilning á hvernig almúginn hefur það greinilega.
Að kalla...
Antaros
| 2. ágúst '10, kl: 00:06:46
| Alls sótt: 0
0
SV: Hvar eigum við að hætta að versla ?
Þú hefur enn minni skilning á hvernig almúginn hefur það greinilega. Að kalla það að reyna að þrauka í þessu landi stuðning við glæpaliðið er heimskulegt.
tinnus1 | Minni skilning? Ég hef þvert á móti góðan skilning á því og ORSÖKUM þessara h...
tinnus1
| 2. ágúst '10, kl: 00:19:09
| Alls sótt: 0
0
SV: Hvar eigum við að hætta að versla ?
Minni skilning? Ég hef þvert á móti góðan skilning á því og ORSÖKUM þessara hræðilegu hluta sem eru að gerast.
Stórnmálamenn eru venjulegt fólk sem eiga í sama basli og flestir aðrir í landinu. Ekki gleyma því.
Antaros | eiga einstaklingarnir þá að taka það að sér?
Stjórnmálaflokkarnir fitna á fjó...
Antaros
| 1. ágúst '10, kl: 09:13:16
| Alls sótt: 0
+2
SV: Hvar eigum við að hætta að versla ?
eiga einstaklingarnir þá að taka það að sér? Stjórnmálaflokkarnir fitna á fjósbitanum og eina ráðið ykkar fyrir almenning er að við skulum hugsa um þjóðarhag. En það er sko ekkert sem þeim kemur við.
amazona | Almannahag - hver er sjálfum sér næstur -
Bónus er næst mér, get labbað þan...
amazona
| 2. ágúst '10, kl: 01:17:12
| Alls sótt: 0
0
SV: Hvar eigum við að hætta að versla ?
Almannahag - hver er sjálfum sér næstur -
Bónus er næst mér, get labbað þangað, vörurnar eru ódýrastar
ekki fer ég að keyra í önnur sveitafélög eins og vel efnaðir vinir mínir,
sem versla í Fjarðarkaupum og Kosti, hef ekki efni á því, sorrí 1
Mjallhvít og dvergarnir 5 | Sammála Ozzy þarna. Nú verður hver að hugsa um eigin kopp, allt sýkt af spill...
Mjallhvít og dvergarnir 5
| 1. ágúst '10, kl: 21:13:45
| Alls sótt: 0
0
SV: Hvar eigum við að hætta að versla ?
Sammála Ozzy þarna. Nú verður hver að hugsa um eigin kopp, allt sýkt af spillingu svo víða.
"Músík og listir eru áhugasvið þitt. Ef þú þróar hina blundandi hæfileika þína,ætti þér að ganga vel á þessum sviðum. Þú ert ástúðlegur,auðveldur í umgengni og þykir mjög vænt um börn".
Alliat | Kjöthöllin. Held þær séu tvær verslanirnar hjá þeim og þeir eru matvöruverslu...
Alliat
| 1. ágúst '10, kl: 10:08:14
| Alls sótt: 0
0
SV: Hvar eigum við að hætta að versla ?
Kjöthöllin. Held þær séu tvær verslanirnar hjá þeim og þeir eru matvöruverslun með kjötborði, sem sagt selja ekki bara kjöt eins og margir halda.
Ein í "Miðbæ" á Háaleitisbrautinni og önnur við hliðina á American Style í Skipholtinu. Held að það sé eigandinn sem ég versla oftast beint við á Háaleitisbrautinni og hann er mjög almennilegur. Var búinn að versla þarna nokkrum sinnum þegar allt í einu kom synjun á kortið, en hann sagði mér bara að koma og borga þetta þegar ég gæti, skrifaði þetta ekki einu sinni hjá sér - ég borgaði auðvitað strax og ég fékk pening, enda reddaði þétta mér alveg.
Svo var held ég einn "kaupmaður á horninu" eftir og hann er ofarlega í Bankastrætinu, nálægt Hallgrímskirkju... er á hægri hönd ef maður snýr að kirkjunni. En það er of langt í burtu frá mér til þess að ég þekki það eitthvað nánar.
---------------------------------------
http://www.this.is/alliat/ljosmyndir - fallegar ljósmyndir prentaðar á striga tilbúnar beint á vegginn! Gott verð og hægt að sérpanta í mismunandi stærðum!
REBEL | Held reyndar að sá sem þú nefnir síðast hafi verið kallaður "gyðingurinn...
REBEL
| 1. ágúst '10, kl: 10:19:47
| Alls sótt: 0
+1
SV: Hvar eigum við að hætta að versla ?
Held reyndar að sá sem þú nefnir síðast hafi verið kallaður "gyðingurinn" (af því að hann var svo dýr) og að hann hafi hætt eftir að Bónus opnaði í nágrenninu.
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Allt sem ég segi er það eina rétta og engin ástæða að halda öðru fram!!!
Alliat | Ah, það gæti verið, hef ekki komið þangað svo lengi. :/
Alliat
| 1. ágúst '10, kl: 10:23:05
| Alls sótt: 0
0
SV: Hvar eigum við að hætta að versla ?
Ah, það gæti verið, hef ekki komið þangað svo lengi. :/
---------------------------------------
http://www.this.is/alliat/ljosmyndir - fallegar ljósmyndir prentaðar á striga tilbúnar beint á vegginn! Gott verð og hægt að sérpanta í mismunandi stærðum!
KilgoreTrout | Ég kaupi mikið í Kjöthöllinni,.. tam. kryddblöndurnar þeirra,.. stundum grænm...
KilgoreTrout
| 1. ágúst '10, kl: 21:15:51
| Alls sótt: 0
+1
SV: Hvar eigum við að hætta að versla ?
Ég kaupi mikið í Kjöthöllinni,.. tam. kryddblöndurnar þeirra,.. stundum grænmeti og allt kjöt sem er étið á mínu heimili..
En að kaupa í matinn er 200% dýrara þar en í Bónus.. sorrí,.. ég get ekki gert mín innkaup þarna..
Ætlaði einu sinni að kippa með snakkpoka handa manninum mínum þegar ég keypti kjötkassa og hætti snarlega við þegar ég sá að pokinn kostaði 650 kall,.. kostar 219 í Bónus..
------------------------------
Óska eftir Graco kerru á sanngjörnu verði og sessu í Hókus Pókus stól
-------------------------------
"What's that Joker.. ? You'll be back,.. ? Somehow I doubt that,.."
REBEL | Ég versla amk frekar í Krónunni heldur en Bónus. Mér blöskrar hvernig Arion ...
REBEL
| 1. ágúst '10, kl: 11:13:45
| Alls sótt: 0
+3
SV: Hvar eigum við að hætta að versla ?
Ég versla amk frekar í Krónunni heldur en Bónus. Mér blöskrar hvernig Arion Banki heldur á spöðunum varðandi Haga.
Fáránlegt að Jón Ásgeir og co fái endalaust að halda sínum fyrirtækjum þrátt fyrir að skulda meira en mannlegt er.
Eigendur Morgunblaðsins misstu fyrirtækið og töpuðu því fé sem lagt hafði verið í það en á meðan dælir bankinn peningum í 365 miðla til að tryggja Jóni Ásgeiri eignarhaldið og gefur þeim svo forkaupsrétt að hlutabréfum í Högum og stjórnarformannssæti í þokkabót.
Fáránleg vinnubrögð og að sjálfsögðu eigum við neytendur að spyrna við fótum ef við mögulega getum.
Ég skil þó vel þá sem ekki hafa efni á öðru en að versla þar sem ódýrast er.
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Allt sem ég segi er það eina rétta og engin ástæða að halda öðru fram!!!
frida83 | Hvað með Fjarðarkaup?
Ég veit að það getur verið kannski pínu langt í burtu...
frida83
| 1. ágúst '10, kl: 22:30:47
| Alls sótt: 0
+2
SV: Hvar eigum við að hætta að versla ?
Hvað með Fjarðarkaup?
Ég veit að það getur verið kannski pínu langt í burtu þarna í Hafnarfirði.. en mér finnst þetta æðisleg verslun! Gott úrval skemmtilegt andrúmsloft og svo er þetta líka krúttlegt gamaldags fjölskyldufyrirtæki.
smari80 | Ný verslunarkeðja ætlar sér að opna fimm matvöruverslanir á höfuðborgarsvæðin...
smari80
| 2. ágúst '10, kl: 23:41:24
| Alls sótt: 0
0
SV: Hvar eigum við að hætta að versla ?
Ný verslunarkeðja ætlar sér að opna fimm matvöruverslanir á höfuðborgarsvæðinu á næstunni. Auglýst var eftir húsnæði í helgarblaði Fréttablaðsins og herma heimildir blaðsins að viðbrögðin hafi verið góð.
Heimildarmaður blaðsins, sem tengist félagi sem undirbýr stofnun matvöruverslananna, segir að með því að auglýsa eftir um 2.000 fermetra húsnæði á fimm stöðum á höfuðborgarsvæðinu sé nýtt skref í átt að því að opna verslanirnar stigið. Erfitt sé að segja fyrir um hvenær þær verði opnaðar, en ef vel gangi geti hlutirnir gerst hratt.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins standa erlendir fjárfestar að baki framtakinu. Fjármögnun virðist vel á veg komin, ef marka má auglýsinguna sem birt var á laugardag, þar sem lofað var tólf mánaða leigu fyrirfram. Ekkert fékkst uppgefið frá forsvarsmönnum hins nýja félags í gær hvers konar verslanir stæði til að opna. Í auglýsingunni var áhugasömum bent á að senda póst á auglýsingadeild 365 miðla merktum „Betri en Bónus", og má því búast við að um lágvöruverðsverslanir